Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir eru líklega ekki þeir einu á Íslandi sem eru hættir að skilja málefni Haga. Jóhannes Jónasson hefur haldið því fram að ekkert yrði afskrifað vegna hans og fjölskyldu. Jón Ágseir lýsti því yfir síðasta sumar að þrír ónefndir erlendir aðilar væru tilbúnir að leggja 16 milljarða inn í fyrirtækið. Hvar eru þeir peningar?
Nú hefur hins vegar komið í ljós að allar þessar yfirlýsingar voru innantóm og marklaus. Arion ætlar að vísu að skrá Haga á markað og lofa Jóhannesi og Jóni Ásgeiri að eignast 10 eða 15% hlut í fyrirtækinu, en bankastjórinn neitar að upplýsa hvort bankinn þurfi að afskrifa eitthvað af tugmilljarða skuldum. Smáfuglarnir spyrja aðeins: Voru allar yfirlýsingar Jóhannesar um að ekkert þyrfti að afskrifa marklausar? Voru yfirlýsingar Jóns Ásgeirs um að 16 milljarðar væru væntanlegir án innistæðu? Var allt leikritið um að Malcolm Walker, forstjóri Iceland keðjunnar, ætlaði að veðja á þá feðga, bara leikrit?
Smáfuglarnir spyrja: Er það með þessum hætti sem útrásarvíkingarnir tryggja sér áframhaldandi hlut í íslensku viðskiptalífi? Afhverju telur Arion að bankinn þurfi að taka sérstakt tillit til þeirra feðga sem skulda bankanum tugi milljarða? Á sama tíma eru einstaklingar, sem gerðu ekkert af sér að berjast í bökkum, og fá ekki slíkar afskriftir. Er þetta hið nýja Ísland?
Smáfuglarnir spyrja Jóhannes sérstaklega: Var ekkert að marka loforð sem þú gafst þjóðinni um að ekkert þyrfti að afskrifa?
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.