amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:13
 
 
Fuglahvísl birtist 4. febrúar 2010 klukkan 12:00

Steingrímur J. vegur að Björgvini G. og leggur vopn í hendur Hollendinga

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lásu á ruv.is 3. febrúar:

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir mögulegar brotalamir í íslenska eftirlitskerfinu, í aðdraganda falls Landsbankans, geta gagnast Hollendingum í hugsanlegu dómsmáli.

Steingrímur segir að ríkisstjórnin hafi haft veður af því að Hollendingar teldu að brotalamir hefðu verið í upplýsingagjöf íslenskra eftirlitsaðila. Þetta hafi komið fram í umfjöllun um málið, í rannsóknarskýrslu sem tengist hollenska seðlabankanum og umfjöllun í hollenska þinginu. Þessi afstaða hafi síðan orðið skýrari síðustu daga.

Sigurður Bogi
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Smáfuglarnir telja, að Steingrímur J. hefði betur látið þetta ósagt. Hann er með tali af þessu tagi að leggja vopn í hendur andstæðinga Íslendinga, ef til málaferla kæmi við Breta og Hollendinga.

Hvaða ástæðu hefur Steingrímur J. til að gera því skóna, að brotalamir hafi verið í íslenska eftirtlitskerfinu? Jú, hann er sífellt að reyna að koma höggi á ráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Í þessu tilviki beinir hann vopnum að Björgvin G. Sigurðssyni, þáverandi viðskiptaráðherra, sem bar pólitíska ábyrgð á íslenska eftirlitskerfinu.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX