amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:23
 
 
Fuglahvísl birtist 3. febrúar 2010 klukkan 13:39

Sægreifinn Reynir Traustason

Hagnaðist um 10 milljónir á sölu kvóta segir í myndbandi

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
dv.is
Reynir Traustason, ritstjóri DV, seldi kvóta fyrir 10 milljónir og fluttist svo frá Flateyri. Nú skrifar hann ljóta texta um þá sem gera það sama.

Smáfuglarnir sem leggja það á sig að fletta síðum DV hafa ekki farið varhluta af því að ritstjóri blaðsins, Reynir Traustason, leggur mikið hatur á þá sem hann kallar sægreifa en það munu vera útgerðarmenn sem hafa selt aflaheimildir og skip til annarra útgerðarmanna eða til nýliða í sjávarútvegi sem kaupa sér skip og heimildir og hefja rekstur. Þeir allra verstu, að mati ritstjórans, hafa svo selt veiðiheimildir burt frá litlum þorpum á landsbyggðinni.

Það vakti því mikla athygli í fuglatrénu þegar upp kom á Youtube myndband sem dregur saman feril Reynis í sjávarútvegi. Samkvæmt myndbandinu fékk Reynir aflakvóta sem hann síðan seldi fyrir 10 milljónir. Bát sinn gerði Reynir út frá Flateyri en seldi bátinn auk kvóta. Að því búnu flutti Reynir burtu frá Flateyri með alla peningana.

Smáfuglarnir telja að hér hafi Reyni enn og aftur tekist að bíta höfuðið af skömminni.

Myndbandið um Sægreifann Reyni Traustason

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX