amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 14:10
 
 
Fuglahvísl birtist 2. febrúar 2010 klukkan 14:02

Jóhanna í leyniferð til Brussel

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Hrannar B. Arnarsson

Athugun fréttamanna RÚV á vefsíðu ESB leiddi í ljós, að Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, ætlar að hitta Jóhönnu Sigurðardóttur næsta fimmtudag. Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu, brást hinn versti við því, að upp hefði komist um fréttina. Sannaðist þar enn, að leyndarhyggjan um athafnasemi Jóhönnu er svo rík, að hún slær jafnvel út baktjaldamakkið í Brussel.

Smáfuglarnir minna á, að Hrannar færir aðeins efni fyrir vini og vandamenn inn á vefsíðu sína. Einar Karl Haraldsson, upplýsingafulltrúi Jóhönnu, er víst aðallega önnum kafinn við að svara neikvæðu bloggi um Jóhönnu. Ekkert er sagt um ferðir Jóhönnu inn á vefsíðu forsætisráðuneytisins.

Jóhanna varðist allra frétta um hverja hún mundi hitta fyrir utan Barroso. Herman Van Rompuy, forseti ráðherraráðs ESB, verður kannski í Brussel. Rétt er að geta þess, að Barack Obama hefur ákveðið að sækja ekki fund leiðtoga ESB-ríkja í Madrid í maí, eins og ráðgert var, af því að hann vill ekki dragast inn í deilu um, hvort hann eigi að heilsa Van Rompuy á undan Zapatero, forsætisráðherra Spánar, en þeir deila um forsetatignarröðina innan ESB, eftir að Lissabon-sáttmálinn var samþykktur. ESB-fréttir um Lissabon-sáttmálann snerust um, að verið væri að einfalda stjórnkerfi ESB með honum. Niðurstaðan er önnur.

Smáfuglunum kæmi ekki á óvart, að Jóhanna áttaði sig ekkert á því, hver er hvað í Brussel og þess vegna hafi Hrannar og Einar Karl einfaldlega ákveðið, að öll ferð Jóhönnu yrði sveipuð leyndarhjúpi.

 
Meira fuglahvísl

Hótun Jóhannesar í Bónus gegn Lilju marklaus

Smáfuglarnir lesa á Pressunni 12. mars: „Lilja Móses­dóttir, formaður viðskipta­nefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb “pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að e...

Steingrímur J. þreyttur á eigin kjaftæði?

Smáfuglarnir taka eftir því, að Steingrímur J. er sífellt að barma sér. Hann spurði erlenda blaðamenn, hvort þeir vissu um einhvern, sem vildi taka við starfinu af sér. Þetta sagði hann til að benda þeim á, hve ofurmannleg raun væri að gegna fjármála­ráðherraembættinu. Þeir, sem vilja tala sig í mjúk...

Étt-ann-sjálfur Steingrímur J. stillir mönnum upp við vegg

Smáfuglarnir lesa á mbl.is 12. mars: „„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði að ríkis­stjórnin sé ekkert að gera,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármála­ráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og vísaði þar m.a. til þeirrar gagnrýni sem forsvarsmenn í atvinnulífinu hefðu sett ...

Bildt ruglar um Icesave og Norðurlönd - Össur þegir

Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkis­ráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars: „Carl Bildt, utanríkis­ráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave....

Ólafur Steph. á mannaveiðum í Hádegismóum

Smáfuglarnir lesa á Eyjunni 11. mars: „Væntanlegt brotthvarf skopteiknarans Halldórs Baldurssonar frá Morgunblaðinu og yfir á Fréttablaðið þykir mikil blóðtaka fyrir blaðið. Það var upphaflega Ólafur Þ. Stephensen sem réð hann í vistina í Hádegismóum. Nú þegar hann hefur tekið við í Skaftahlíð...

Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið

Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármála­ráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóða­skuldbindingum með þjóðar­atkvæða­greiðslu og láta eins og sænska ríkis­stjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...

Magnús Orri Schram setur ríkis­stjórninni 5 skilyrði

Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...

Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir

Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnar­formanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX