Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.
Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.

Smáfuglarnir og Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, eiga ekki alltaf samleið þó um margt séu þau samstíga. Kolbrún er gædd þeim hæfileika að segja hug sinn með skýrum hætti. Hún fagnar því að RÚV hafi hætt við að sýna beint frá Edduverðlaununum og Grímunni.
Í fjölmiðlapistli í Morgunblaðinu 1. febrúar bendir Kolbrún á að niðurskurður hjá fyrirtækjum þurfi ekki alltaf að leiða til ills. Þetta á við um ákvörðun RÚV um að sýna ekki beint frá athöfnum eins og Edduverðlaununum og Grímunni. Kolbrú skrifar síðan:
„Þessar athafnir hafa oft helst minnt á fyrirtækjaárshátíðir og ekki átt sérstakt erindi við almenning. Reynt hefur verið að klína Hollywoodbrag á viðburðina með viðtölum við prúðbúna gesti þar sem fjálglegur spyrill forvitnast um klæðnað þeirra. Sá þáttur í dagskránni er alltaf jafn stórfurðulegur og algjörlega úr takt við íslenskan glamúrlausan raunveruleika.
Á þessum hátíðum fær svo nokkurn veginn sama fólkið verðlaun ár eftir ár, ræðurnar eru oft kjánalegar og skemmtiatriðin stundum svo vandræðaleg að áhorfendur taka jafnvel fyrir augun. Reyndar er eins og listamönnunum sé heldur ekkert sérlega skemmt og mæti þarna fremur af skyldu en ánægju. Þeir væru örugglega mun afslappaðri og kátari ef þeir væru lausir undan þeirri kvöð að þurfa að skemmta sér í beinni útsendingu.
RÚV gerir rétt með því að stinga af frá þessum einkasamkvæmum.“
Smáfuglarnir muna ekki eftir betri lýsingu á þessu furðulegum fyrirbærum í íslenskum samfélagi.
Hótun Jóhannesar í Bónus gegn Lilju marklaus
Smáfuglarnir lesa á Pressunni 12. mars: „Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb “pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að e...
Steingrímur J. þreyttur á eigin kjaftæði?
Smáfuglarnir taka eftir því, að Steingrímur J. er sífellt að barma sér. Hann spurði erlenda blaðamenn, hvort þeir vissu um einhvern, sem vildi taka við starfinu af sér. Þetta sagði hann til að benda þeim á, hve ofurmannleg raun væri að gegna fjármálaráðherraembættinu. Þeir, sem vilja tala sig í mjúk...
Étt-ann-sjálfur Steingrímur J. stillir mönnum upp við vegg
Smáfuglarnir lesa á mbl.is 12. mars: „„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði að ríkisstjórnin sé ekkert að gera,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og vísaði þar m.a. til þeirrar gagnrýni sem forsvarsmenn í atvinnulífinu hefðu sett ...
Bildt ruglar um Icesave og Norðurlönd - Össur þegir
Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkisráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars: „Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave....
Ólafur Steph. á mannaveiðum í Hádegismóum
Smáfuglarnir lesa á Eyjunni 11. mars: „Væntanlegt brotthvarf skopteiknarans Halldórs Baldurssonar frá Morgunblaðinu og yfir á Fréttablaðið þykir mikil blóðtaka fyrir blaðið. Það var upphaflega Ólafur Þ. Stephensen sem réð hann í vistina í Hádegismóum. Nú þegar hann hefur tekið við í Skaftahlíð...
Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið
Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármálaráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóðaskuldbindingum með þjóðaratkvæðagreiðslu og láta eins og sænska ríkisstjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...
Magnús Orri Schram setur ríkisstjórninni 5 skilyrði
Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...
Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir
Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnarformanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri.