amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:28
 
 
Fuglahvísl birtist 31. janúar 2010 klukkan 09:29

Vinnu­sambandi okkar er lokið - farðu heim!

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Elín Hirst

Smáfuglarnir lásu viðtal Sunnudagsmoggans við Elínu Hirst, einn þekktasta og vinsælasta sjónvarpsmann, landsins. Þar lýsir Elín meðal annars hvernig staðið var að uppsögn hennar á Ríkisútvarpinu.

Af lýsingum Elínar að dæma er ekki mikið um mannlegar tilfinningar að ræða hjá þessari ríkisstofnun, sem heldur því fram að vera í eigu allra landsmanna. Merkilegt er að samstarfsmaður Elínar til áratuga, jafnt á Stöð 2 og hjá Ríkisútvarpinu, sýndi henni ekki þá kurteisi að horfast í augu við hana á erfiðum tímamótum. Páll Magnússon útvarpsstjóri taldi sig aðeins þurfa að undirrita uppsagnarbréfið. Óðinn Jónsson fréttastjóri rétti Elínu bréfið og sagði að vinnusambandi þeirra væri lokið og hún ætti að fara heim.

Smáfuglarnir telja rétt að birta þennan kafla viðtalsins af gegnu tilefni, en Elín stjórnaði einum vinsælasta sjónvarpsþætti RÚV:

„Ég hafði fengið förðunina og til stóð að ég færi í fréttalestur um kvöldið, þannig að ég hljóp upp stigann á aðra hæð, en mætti þar Ingólfi Bjarna Sigfússyni varafréttastjóra, sem beið eftir mér við stigaopið og sagði: „Óðinn vill tala við þig.“

Ég spurði: „Nú, nú, ætlar hann að reka mig?“

„Já, ég er hræddur um það,“ svaraði hann.

Þannig að ég gekk beint á skrifstofuna til Óðins [Jónssonar fréttastjóra]. Það var stutt og laggott samtal. Hann rétti mér uppsagnarbréfið undirritað af Páli [Magnússyni útvarpsstjóra] og sagði jafnframt að uppsögnin ætti að taka gildi nú þegar. Ég spurði ekkert um ástæður. Hann sagði mér að auki að Fréttaaukinn yrði lagður niður og þannig væri uppsögnin til komin. Það gæti samt verið að mér byðust einhver verkefni á vegum RÚV, en það væri seinni tíma mál.

Ég var með förðunina á mér og allt klárt og spurði hvort ég ætti að lesa fréttir klukkan 19 og 22 um kvöldið, eins og til hafði staðið.

Hann svaraði: „Nei, vinnusambandi okkar er lokið og nú átt þú að fara heim.“

Þá gekk ég út og heyrði það á samstarfsmönnum mínum, sem hringdu síðar í mig, að ég hefði verið eins og vofa. Enda er manni brugðið.“

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX