amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Mánudagurinn 20. maí 2013 - 09:05
 
 
Fuglahvísl birtist 29. nóvember 2009 klukkan 10:18

Draumur Dorritar: Ísland svalara Dubai

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir fylgjast eins og aðrir með fréttum frá Dubai, sem sumir segja, að sé í svipaðri stöðu og Íslands var, að hafa reist sér hurðarás um öxl vegna fíknar í ódýrt lánsfé, sem varið var til óarðbærra hluta. Í sömu andrá minnast smáfuglarnir draumsýnar Dorritar, forsetafrúar, sem birtist í breska blaðinu The Sunday Times 1. febrúar 2009, sama dag og Ólafur Ragnar rak smiðshöggið á minnihlutastjórn Jóhönnu og Steingríms J. og skálaði með þeim í kampavíni á Bessastöðum. Í viðtali hins víðlesna blaðs við frú Dorrit sagði meðal annars (smáfuglarnir birta textann á ensku til að blæibrigði textans haldi sér):

„Indeed, she’s [Dorrit] hoping to turn the country into a sort of deluxe haven where cosseted clients from around the world can come and pick up treats: a chillier version of Dubai, with fish and geysers instead of sand. Moussaieff has stumbled upon a disused airbase in Iceland and hopes to transform it into a store for art collections that people will then be able to visit. She has teamed up with her great friend the art collector and heiress Francesca von Habsburg for the scheme.“

Draumur Dorritar var að breyta Íslandi í svalara Dubai! Og nú leikur þar allt á reiðiskjálfi eftir heimkomu þeirra Ólafs Ragnars frá furstum Sameinuðu arabísku furstadæmana. Kannski Dorritar geti boðið þeim aðstöðu á Keflavíkurflugvelli? Ekki hefur hún breytt gömlu varnarliðshíbýlunum í listasafn með Habsburgfurstinunni.

Í viðtalsgrein The Sunday Times birtust einnig þessar gullvægu setningar:

„Her husband’s entire government may have just resigned but she seems unruffled by the political turmoil. „He is currently attending to an entirely new administration,“ she acknowledges. So why did he not resign, then? „Nobody asked him to. More champagne?“

Nei, það bað enginn Ólaf Ragnar að hætta – því miður. Nú er hann hins vegar beðinn að stöðva Icesave-ósómann. Meira kampavín?

 
Meira fuglahvísl

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum

Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.

Ásakar formann Framsóknar­flokksins um ósannindi

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.

Framsóknar­maður á bar

Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknar­maður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknar­manninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknar­manninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX