amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 21. maí 2013 - 16:48
 
 
Fuglahvísl birtist 26. nóvember 2009 klukkan 07:41

Jóhanna Sigurðar­dóttir: „Skattakrumla ríkisins finnur sér ýmsar leiðir...“

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Að segja eitt í dag og annað á morgun, hefur því miður verið einkenni sumra stjórnmálamanna, íslenskra sem erlendra. En auðvitað er þeim heimilt að skipta um skoðun eins og öðrum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur verið dugleg í þeim efnum.

Smáfuglarnir muna eftir því þegar hún lýsti því yfir árið 2001 að gallarnir við aðild að Evrópusambandinu væru meiri en kostirnir. Nú vinnur hún ötullega að því að koma landinu inn í sambandið, jafnvel gegn meirihlutavilja. Smáfuglarnir minnast þess einnig þegar Jóhanna lýsti því yfir á þingi í febrúar síðastliðnum að fjarstæða væri að halda því fram til stæði að hækka skatta á næstu mánuðum.

Og talandi um skatta þá rákust smáfuglarnir á skemmtilega grein frá því í mars 2004 um skattamál en þar segir meðal annars:

„Skattakrumla ríkisins finnur sér ýmsar leiðir til að hala inn tekjur, aðrar en gegnum beina og óbeina skatta. Tekjuskattar, eignaskattar, hátekjuskattur, fjármagnstekjuskattur, og virðisaukaskattur eru oftast í umræðunni þegar rætt er um skattheimtu ríkissjóðs. Minna er talað um ýmsar aukatekjur ríkissjóðs, rekstrartekjur stofnana og þjónustugjöld, sem þó kom mjög við buddu landsmanna og koma oft fram sem dulin skattheimta.“

Höfundurinn er Jóhanna Sigurðardóttir, sem þá sat í stjórnarandstöðu. Greinin er skrifuð á vef ungra jafnaðarmanna og hægt að lesa hér í heild.

Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvort ekki væri hollt fyrir Jóhönnu að rifja greinina upp áður en gengið er frá mestu skattahækkunum í sögu þjóðarinnar og afhenda Steingrími J. afrit. Skattakrumlan verður að minnsta kosti sífellt stærri eftir því sem Jóhanna situr lengur í forsæti ríkisstjórnar.

 
Meira fuglahvísl

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum

Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.

Ásakar formann Framsóknar­flokksins um ósannindi

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.

Framsóknar­maður á bar

Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknar­maður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknar­manninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknar­manninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX