Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Smáfuglarnir lesa á visir.is 6. nóvember:
„Í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær tók Jóhanna undir með Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, sem sagði að hrunið síðastliðið haust hefði afhjúpað veikleika í stjórnsýslunni hér á landi. Þar hafi risið upp ókleifir múrar sem geri samvinnu milli ráðuneyta oft seinlega og erfiða. „Það þarf ekki annað en einn embættismann, sem dregur lappirnar, til að koma í veg fyrir skilvirkt samstarf,“ sagði Þórunn.
Jóhanna sagðist ekki geta varist þeirri hugsun að mál hefðu getað þróast með öðrum hætti síðastliðið haust ef ýmsar ákvarðanir sem snertu hrunið hefðu verið lagðar fyrir ríkisstjórn til sameiginlegrar umræðu og ákvörðunar. Hún sagðist hafa skipað nefnd til að endurskoða starfshætti ríkisstjórnar og fyrirkomulag ríkisstjórnarfunda. Þeirri nefnd verði falið að skoða kosti þess og galla að ríkisstjórn Íslands verði fjölskipað stjórnvald.“
Smáfuglarnir muna ekki betur en þær Jóhanna og Þórunn hafi báðar setið í ríkisstjórn haustið 2008. Hvað hefði orðið á annan veg í hruninu, ef mál hefðu verið borin undir ríkisstjórnina alla? Jóhanna kemst varla upp með að tala í hálkveðnum vísum um það.
Smáfuglarnir skilja orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur á þann veg, að ráðherrar hafi ekki burði til að ráða við embættismenn og þess vegna fái mál ekki framgang í ríkisstjórn. Hvernig væri að hún nefndi dæmi? Til hvers eru ráðherrar? Eru þeir til að hlíta fyrirmælum embættismanna eða gefa þeim fyrirmæli? Hver skyldi hafa ráðið í ráðuneyti Þórunnar?
Smáfuglarnir eru ekki vissir um, að ríkisstjórn sem fjölskipað stjórnvald með ráðherrum innan borðs, sem ráða ekki við embættismenn, er ekki treyst til að ráðstafa „skúffufé“, láta í veðri vaka, að þeir ferðist ekki á Saga Class, þegar þeir gera það, o.s. frv., o.s.frv., o.s.frv. sé betur til þess fallin að stjórna landinu en ríkisstjórn, þar sem hver ráðherra ber skýra ábyrgð á sínum málaflokki. Vandinn felst í því, hverjir eru ráðherrar og þeim mun verr gefast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman.
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.
Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum. En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins?
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?