Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.
Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.
Fáir virðast valda ritstjórn og útgefanda DV meira hugarangri en Davíð Oddsson. Má halda því fram að Davíð hafi lagst á sinnið á þeim. Varla er hægt að opna DV eða fara inn á vef blaðsins öðruvísi en þar sé fjallað um Davíð og Morgunblaðið eftir að hann tók við ritstjórn blaðsins.

Smáfuglarnir hafa aldrei skilið þá miklu heift sem útgefandi DV sýnir Davíð Oddssyni eða það mikla hatur sem Reynir Traustason, ritstjóri ber til kollega sína á Morgunblaðinu. En eins og sagt er, það er þeirra vandamál.
Smáfuglarnir gerðu litla úttekt á skrifum DV frá miðjum september síðastliðnum til að kanna hversu oft hefur verið fjallað um Davíð og Morgunblaðið. Ekki er um vísindalega úttekt að ræða og margt hefur örugglega farið framhjá smáfuglunum við þessa athugun. En eftir smá yfirlegu komust smáfuglarnir að því að sandkorn og fréttir skipta tugum á þessum fáu dögum. Yfir 50 fréttir og sandkorn - hvorki meira né minna. Ótrúlegt og þá skal hafa í huga að ekki er allt talið.
En smáfuglarnir töldu rétt að birta lista sem þeir tóku saman.
14. september
- Sunnudagsmoggi skorinn
18. september
- Náhirðin iðar í skinninu
19. september
- Það sem vantar í Moggann
- Kolbrún líklega rekin
21. september
- Davíð mætir á fimmtudag!
- Kosningastjóri Bjarna Ben í fréttastjórnina?
- Vikapiltur Davíðs
- "Ég sá þetta á netinu og heyrði í útvarpinu“
- "Skæruliðforingja í Hádegismóana“
22. september
- Davíð vill stólinn
- Mogginn í stríð við stjórnina
23. september
- Uppsagnir á Mogganum hrúgast inn
- Þorsteinn ræðst gegn Davíð
24. september
- Sameining Moggans og Viðskiptablaðsins kynnt í dag?
- Mannauður Moggans
- Kári spáði rétt um Davíð
- "Sérstæð tilraun á Mogganum“
- Óttast ekki að Davíð skaði Morgunblaðið
- Bloggið logar en Davíð þegir
25. september
- "Lak ekki í DV"
- "Veruleikafirring að gera óheilbrigðan mann að ritstjóra“
- Meira en þúsund sögðu upp Mogga í gær
- Davíð: Morgunblaðið rak bullandi ESB áróður
- Fréttastjóri RÚV: Ummæli Davíðs dæma sig sjálf
26. september
- Þingmenn flýja Moggablogg
- Davíð og einkaritarinn
- Hriktir í stoðum Árvakurs
- Segir Blaðamannafélagið vera á móti Davíð
27. september
- "Kóngablæti" vegna Davíðs
- Náhirðin í boði DV
28. september
- Stjörnustarfsmaður Davíðs
- Teiknari Mogga sýnir Davíð klærnar
29. september
- Lítið áhorf á Davíð
- Davíð í búr og Agnes burt
30. september
- Mogginn sýknar Davíð
- Uppsagnarbréf Ragnhildar: „Aðstæður hafa breyst“
1. október
- Mogginn í bláskrift
- Fjórir smiðir byggja ritstjórabúr Davíðs
2. október
- Flýgur inn í Moggann
- Styrmir birtist í öllu sínu veldi
4. október
- Hvítbók Davíðs
- Steingrímur vanmetinn, Davíð ofmetinn
5. október
- Davíð er Herra Hrun
- Dvínandi traust á Morgunblaðið
7. október
- Moggi kemur í veg fyrir stórtjón
- Náhirð uppsigað við fréttastjóra
8. október
- Útrásarvíkingur bjargar Mogga
9. október
- Ábending frá DV um lekann!
10. október
- Mogginn og Portúgalarnir
11. október
- Davíð heggur til Björns
- Eiríki Bergmann sagt að fara úr landi
13. október
- Ritstjórar fengu hurðir í aftakaveðri
- Moggabloggið hríðfellur
14. október
- Agnes grætur horfna Moggafélaga
Hótun Jóhannesar í Bónus gegn Lilju marklaus
Smáfuglarnir lesa á Pressunni 12. mars: „Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb “pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að e...
Steingrímur J. þreyttur á eigin kjaftæði?
Smáfuglarnir taka eftir því, að Steingrímur J. er sífellt að barma sér. Hann spurði erlenda blaðamenn, hvort þeir vissu um einhvern, sem vildi taka við starfinu af sér. Þetta sagði hann til að benda þeim á, hve ofurmannleg raun væri að gegna fjármálaráðherraembættinu. Þeir, sem vilja tala sig í mjúk...
Étt-ann-sjálfur Steingrímur J. stillir mönnum upp við vegg
Smáfuglarnir lesa á mbl.is 12. mars: „„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði að ríkisstjórnin sé ekkert að gera,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og vísaði þar m.a. til þeirrar gagnrýni sem forsvarsmenn í atvinnulífinu hefðu sett ...
Bildt ruglar um Icesave og Norðurlönd - Össur þegir
Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkisráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars: „Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave....
Ólafur Steph. á mannaveiðum í Hádegismóum
Smáfuglarnir lesa á Eyjunni 11. mars: „Væntanlegt brotthvarf skopteiknarans Halldórs Baldurssonar frá Morgunblaðinu og yfir á Fréttablaðið þykir mikil blóðtaka fyrir blaðið. Það var upphaflega Ólafur Þ. Stephensen sem réð hann í vistina í Hádegismóum. Nú þegar hann hefur tekið við í Skaftahlíð...
Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið
Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármálaráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóðaskuldbindingum með þjóðaratkvæðagreiðslu og láta eins og sænska ríkisstjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...
Magnús Orri Schram setur ríkisstjórninni 5 skilyrði
Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...
Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir
Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnarformanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri.