amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:31
 

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Í gær Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

 

Postularnir tólf hjá Agli

Í gær Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

 

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Fim Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

 

Þögn Egils um Evu Joly

Mið Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

 

Frasabók Hrannars B.

Þri Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

 

Nýr Bjarni Ben

30. jan Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

 

Atvinnuþátttaka aldrei minni

30. jan Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

 

Jóhanna hrædd við kosningar

30. jan Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 

Andrés gugnaði

30. jan Smáfuglarnir fylgdust með átökum á flokks­stjórnar­fundi Samfylkingar­innar þar sem nokkrir einstaklingar höfðu lagt fram tillögu um að haldinn yrði landsfundur í vor þar sem forysta flokksins gæti endurnýjað umboð sitt eða ný forysta yrði kosin. Tillagan var góð og hlaut hljómgrunn meðal samfylkingar­manna.

 

Páll Magnússon hræðist Björgu Evu - sendir henni bænaskjal

30. jan Ofsafengin grein Páls Magnússonar útvarps­stjóra gegn Davíð Oddssyni, sem birtist í Morgunblaðinu, vakti töluverða athygli. Ekki vegna innihaldsins sérstaklega heldur vegna þess ofstópa og vanstillingar, sem einkenndu skrifin. Margir hafa átt erfitt með að átta sig á vanstillingu Páls og eru smáfuglarnir í þeim hópi.

 

Sjá sjálfstæðis­menn ekki baráttutæknina?

28. jan Smáfuglarnir hittu á dögunum veraldarvanan, roskinn sjálfstæðis­mann sem sagði: „Sjá forystumenn og talsmenn Sjálfstæðis­flokksins ekki að vinstri­flokkarnir eru að búa sig undir kosningar?“ Og hvernig á að sjá það? „Þeir ætla að kæfa allar umræður um vangetu vinstri­stjórnar­innar og axarsköft. Ekkert verður minnst á að Steingrímur og Jóhanna sömdu af sér í Icesave.

 

Sér Páll útvarps­stjóri ekkert athugavert við þetta?

28. jan Páll Magnússon fer mikinn gegn Davíð Oddssyni í Morgunblaðinu. Jafnframt því sem hann kallar Davíð öllum illum nöfnum ver hann sitt fólk á fréttastofu Ríkisútvarpsins. En þá vakna spurningar hjá smáfuglunum: Sá Páll Magnússon ekkert athugavert við það að í fréttum Ríkisútvarpsins var Icesave-krafa Hollendinga og Breta alltaf kölluð Icesave-skuldin?

 

Niðurlægður Steingrímur í Brussel

26. jan Það var ekki liðið langt á árið 2012 þegar mynd ársins birtist á síðum blaðanna hér heima og á netmiðlum í Brussel.

 

Illa staðið að undirskriftasöfnun Ólafs Ragnars

25. jan Smáfuglarnir hafa fylgst með undirskriftasöfnun til stuðnings Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta, á netinu sem Guðni Ágústsson einkavinur forsetans stendur að ásamt öðrum.

 

RÚV báknið stækkar - nú íþróttarás

25. jan Smáfuglarnir eru andstæðingar þess að ríkið reki fjölmiðil og telja sérlega óeðlilegt að þeir sömu og hafa vald til þess að skattleggja almenning standi í rekstri á fréttastofu sem segir fréttir sem henta ríkis­stjórninni og fjallar ekki um þau mál sem koma henni illa. RÚV boðar nú stórfellda samkeppni við þá einkaaðila sem sinna íþróttaáhugamönnum.

 

Skattlausir á opinberu framfæri

25. jan Athyglisverð umræða spannst á Alþingi í gærdag um þá staðreynd að opinberir embættismenn alþjóða­stofnana sem eru í öðru landi vegna starfa sinna eru þar án þess að þurfa að greiða nokkurn skatt.

 

Stephensen birtir hvað sem er

24. jan Smáfuglarnir fylgjast undrandi með Fréttablaðinu þessa dagana. Ólafur Stephensen situr hinn roggnasti í rit­stjórastólnum og skrifar stundum skynsamlega leiðara, meðal annars um hinar pólitísku ofsóknir gegn Geir Haarde.

 

Hvenær skila prófessorar skýrslum yfir 2011?

23. jan Smáfuglarnir sá að prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur þegar skilað skýrslu yfir verk sín á árinu 2011. Þar er yfirlit yfir greinar í innlendum og erlendum tímaritum og dagblöðum, erindi á ráð­stefnum, skipulagningu ráð­stefna, ritdóma, fræðsluefni fyrir almenning, auk bókarinnar Íslenskir ...

 

Jóhanna kom eignabólu húsnæðis af stað - stendur nú að ákæru á Geir

20. jan Smáfuglarnir muna vel þegar Jóhanna Sigurðar­dóttir barðist fyrir, og fékk í gegn, hækkun á hámarkslánum Íbúðarlána­sjóðs. Þetta hafði stórfelldar afleiðingar í för með sér og kom af stað eignabólu á íslenskum fasteigna­markaði. Sú bóla taldi öllum trú um að þeir væru nú ríkir og gætu veðsett húsin sín, keypt sér nokkur hluta­bréf og beðið svo eftir að þau hækkuðu í verði.

 

Bein leið að sjúkrahúsi eða snittum?

20. jan Smáfuglarnir gerðu í morgun einfaldan samanburð á ríkisstyrkjum til flugvallarins í Vatnsmýri, sem reyndist vera með lægri tölum sem sjást í útgjöldum hins opinbera, og svo styrkjum til tónlistarhússins Hörpunnar. Samanburðurinn dregur fram hina óskiljanlegu forgangsröðun hjá ríki og Reykjavíkurborg.

 

Hatur pólitískra andstæðinga Geirs öllum ljóst

20. jan Smáfuglarnir hafa í dag fylgst með umræðum á Alþingi um hvort falla eigi frá ákæru Alþingis á hendur Geir Haarde. Hvað sem segja má um þær umræður er eitt sem stendur upp úr og er óum­deild sannindamerki þess að réttarhöldin séu mannréttindabrot. Þeir einu sem vilja ákæra Geir Haarde eru allir sem einn svarnir pólitískir andstæðingar hans.

 

Opinberir styrkir Hörpunnar fimm sinnum hærri en Reykjavíkurvallar

20. jan Smáfuglarnir hafa lesið færslur borgarfulltrúa og annarra andstæðinga flugvallarins í Reykjavík á Facebook. Þar eru þeir helst til reiðir yfir „gríðarlegum“ kostnaði ríkisins við flugsamgöngur. Enginn þeirra nefnir tölur en allir eru sammála um að „ríkisniðurgreiddar samgöngur“ eigi ekki að þrífast í nútímanum.

 

Fréttamaður RÚV neitar að leiðrétta frétt

19. jan Smáfuglarnir tóku eftir furðulegu máli. Þóra Arnórs­dóttir, fréttmaður á RÚV og fyrrum frambjóðandi Alþýðu­flokksins, var aðalheimild fréttaveitunnar PRI The World þar sem fjallað var um að iðnaðarsalt hafi verið notað í matvælaframleiðslu. Í fréttinni, sem er að mestu samtal við Þóru, er því haldið fram að vegasalt hafi verið notað í matvælaframleiðslu hérlendis.

 

Finnbogi var rekinn

19. jan Smáfuglarnir heyra innan úr Framtaks­sjóði Íslands að Finnbogi Jónsson hafi verið rekinn og sú atburðarrás sem nú er sett upp umhverfis uppsögnina sé leikrit. Margir telja jafnframt ómerkilegt af stjórn sjóðsins, og þá sérstaklega af Þorkeli Sigurlaugssyni stjórnar­formanni, að koma ekki hreint fram og segja frá starfslokum Finnboga eins og þau voru.

 

Hræsni Jóhönnu

19. jan Smáfuglarnir lesa á Mbl.is „Varðandi þjóðar­atkvæða­greiðslu og ESB, þá er munurinn á mér og Vigdísi Hauksdóttur að ég treysti þjóðinni til að meta það hvort hún vilji þá samninga sem við komum með þegar samningsferlinu er lokið.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra á Alþingi um ...

 

Best að slökkva ljósin

19. jan Smáfuglarnir fengu eftirfarandi ábendingu frá miðaldra Íslendingi: Við mengum hreinasta vatn í heimi með díoxíð, við notum eitraðan áburð á hreinasta land í heimi, við notum iðnaðarsalt í bestu matvæli í heimi, og svo fegrum við fallegustu konur í heimi með ónýtum sílikonpúðum Smáfugl...

 

Ábending til Morgunblaðsins

19. jan Mbl.is greindi frá því í gær að átök hafi orðið á milli japanska hvalveiðimanna og félaga í Sea Shepherd-samtökunum í suðurhöfum. Það sem vakti athygli smáfuglanna var hvaða augum rit­stjórn Morgunblaðsins lýtur á þessi öfga­samtök sem er stjórnað af Paul Watson. Umhverfis­samtök er sú skilgreining ...

 

Skattný sett út í horn

18. jan Smáfuglarnir sjá að Oddný Harðar­dóttir, sem er í starfskynningu sem fjármála­ráðherra fram á sumar, var sett út í horn á ráðherrabekknum. Steingrímur sat sem fastast í sæti fjármál­ráðherra sem er til hægri við ræðustól Alþningis séð úr sal. Það segir meira en margt að Oddný láti bjóða sér aðra eins niðurlægingu. Þó sæti séu í raun smáatriði þá fela þau í sér venju og virðingu.

 

Þráinn, Árni Þór og VG á leið í ruslið

18. jan Þráinn Bertelsson, sem gerðist þingmaður Vinstri grænna, krefst þess að Ögmundur Jónasson innanríkis­ráðherra segi af sér.

 

Furðuleg árás á Þjóðhátíð í Eyjum

18. jan Smáfuglarnir lásu frétt um að 100 karlmenn hefðu saman sent embættismönnum í Vestmannaeyjum bréf þar sem m.a. er spurt hversu margar nauðganir þurfi til svo að hátíðin verði lögð niður. Allir eru sammála um að útrýma nauðgunum enda hefur tekist frábærlega til í þeim efnum í gegnum árin hérlendi...

 

Hvað ætli sú Ellen segi?

18. jan Ellen Kristjáns­dóttir söngkona kærði í gær nágranna sinn fyrir að hafa komið fyrir kívíávexti á girðingu, þar sem sonur Ellenar, sem haldinn er ofnæmi fyrir kíví, átti leið um. Ef drengnum hefur verið hætta búin af þessu, þá er um alvarlegt mál að ræða svo vonandi tekur lög­reglan af alvöru á málinu. Sjónvarpsvélar fylgdu Ellen á lög­reglustöðina.

 

Myrkra­stjórnin

17. jan Smáfuglarnir heyra að vinstri­stjórnin sé nú kölluð myrkra­stjórnin eftir að umhverfis­ráðherra boðaði starfshóp um verndun „myrkusins sem auðlindar“. Þetta er í takt við annað hjá myrkra­stjórninni sem tryggir að hvergi sé bjart yfir. Einstaklingar hefa þurft að taka á sig þungar skattahækkanir og f...

 

Starfshópur skipaður til að gera Ísland að Norður Kóreu

17. jan Í Norður Kóreu er myrkur svo að margir ungir íbúar þar kannast ekki við raflýsingu og lesa um hana í sögubókum. Þar er skorturinn svo mikill að einu svæðin sem eru lýst eru í höfuðborg landsins þar sem embættismenn lýsa upp hýbílí sín. Nú er stefnan tekin á sömu mið af íslensku vinstri­stjórninni.

 

Mörður talar áfram við myrkrið

17. jan Fyrir nokkru sögðu smáfuglarnir frá því að Mörður Árnason hefði snúið sér að myrkrinu þegar hann þorði ekki að fjalla um stöðu Más Guðmundssonar, seðlabunka­stjóra.

 

Það má aldrei bogna

17. jan Smáfuglarnir rákust á myndbrot úr ræðu sem Davíð Oddsson flutti á landsfundi Sjálfstæðis­flokksins árið 2009. Þau orð sem þar féllu eiga jafn vel við nú og þá. ...

 

Steingrímur undirbýr kosningar

17. jan Smáfuglarnir hafa fylgst með Steingrími J. Sigfússyni frá því að hann hætti sem fjármála­ráðherra. Margir áttu erfitt með að skilja hvers vegna hann samþykkti að fara úr því mikilvæga ráðuneyti og yfir í atvinnumál, landbúnað og sjávar­útveg. Þeir sem svo hugsuðu fá brátt svör sín. Steingrímur undi...

 

Jóhanna nefndi ekki ASÍ

16. jan Smáfuglarnir horfðu á Jóhönnu Sigurðardóttur segja á Alþingi að SA haldi upp grímulausri stjórnar­andstöðu af því að þeir segja allar forsendur brostnar og svik mikil við sáttmála sem gerður var við stjórnvöld. Jóhanna nefnir ekki að ASÍ heldur nákvæmlega því sama fram. Hvers vegna ekki?

 

Forheimska í nýjum byssulögum

16. jan Smáfuglarnir sjá að nú ætlar Ögmundur Jónasson að banna þeim sem fara að lögum að eiga hálfsjálfvirk skotvopn. Verði frumvarp að nýjum vopnalögum samþykkt er endi bundinn á þrjár greinar skotíþrótta. Einnig verður söfnurum sem fara að lögum bannað að eiga fleiri byssur en tuttugu. Allt er þetta gert án nokkurra vísbendinga um að löghlýðnir borgarar hafi misfarið með byssur sínar.

 

Fyrsta kaldhæðnisnafn á stjórnmála­flokk - Björt framtíð

16. jan Smáfuglarnir sjá að höfundur og flytjandi lagsins Samfylkingin er besti flokkur á Íslandi hefur valið uppistandshóp sínum nafn. Þetta gerir Guðmundur eftir að nær allir aðrir flokkar á þingi höfðu fengið nóg af honum. Víst má telja að þetta sé fyrsta nafn á stjórnmála­flokki á Íslandi sem er kaldhæðið, og ef ekki öfugsnúið.

 

Þögn RÚV um málefni Hafnarfjarðar

16. jan Smáfuglarnir hafa í nokkrar vikur beðið frekari frétta af fjármálum Hafnarfjarðar en sveitar­félagið hefur um langa hríð neitað að upplýsa um ýmsa þætti varðandi fjárhagsstöðu sína. Smáfuglarnir hafa áður fjallað um sveitar­félagið sé tæknilega gjaldþrota.

 
 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX