amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 13:47
 
Frétt birtist 29. apríl 2009 klukkan 11:16

„Einsdæmi í samskiptum ríkja“

 
Frétt eftir Jónas Haraldsson
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Jakob Fannar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.

Meðferð embættis forseta Íslands á Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, sætir furðu. Eins og fram kom í Kastljósi Sjónvarpsins í gær var Carol van Voorst boðuð til fundar við forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, á Bessastöðum til að veita viðtöku riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu sem henni hafði skriflega verið tilkynnt um. Carol van Voorst hefur gegnt starfi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi frá því í janúar 2006.

Á heimreiðinni að Bessastöðum var hringt í síma hennar frá forsetaskrifstofunni og tilkynnt að ekkert gæti orðið af því að hún fengi orðuna, en henni væri velkomið að þiggja veitingar hjá forsetanum.

Menn spyrja að vonum hvernig slíkt geti gerst í formlegum samskiptum þjóða og hvort ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir klúðrið, hafi ekki rétt verið að staðið við undirbúning málsins. Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, segir uppákomuna einsdæmi í samskiptum ríkja. „Þetta eru ekki mannasiðir,“ segir hann.

Örnólfur Thorsson forsetaritari, sem situr í orðunefnd, hefur tekið á sig ábyrgð á málinu en jafnvel þótt við gengið sé út frá því að hann hafi ekki staðið formlega rétt að málum verður ekki annað séð en forseti Íslands hefði geta gripið í taumana og veitt sendiherranum orðuna. Til þess hefur hann heimild og getur, sem stórmeistari orðunnar, veitt hana án tillagna orðunefndar.

Í orðunefnd sitja auk Örnólfs Thorssonar forsetaritara, Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi forseti Alþingis, sem er formaður, Jón Helgason, fyrrverandi ráðherra, Rakel Olsen, framkvæmdastjóri, Ólafur Egilsson, fyrrverandi sendiherra og Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður UNICEF.

Í frétt Morgunblaðsins í morgun af málinu, þar sem m.a. er vitnað til Kastljóss Sjónvarpsins, segir:

„Þarna urðu leiðinleg mistök sem ég ber ábyrgð á,“ segir Örnólfur Thorsson orðu- og forsetaritari um ástæðu þess að Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, var sent bréf þess efnis að forseti Íslands hygðist sæma hana hinni íslensku fálkaorðu.

Samkvæmt því sem að fram kom í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær var það ekki fyrr en á leið út á Bessastaði að hitta forsetahjónin sl. föstudag sem Voorst barst símtal þess efnis að ekki stæði til að sæma hana orðunni. Enginn nánari skýring fylgdi, en sagt að þau hjónin væru velkomin á Bessastaði.

Barst aldrei orðunefnd

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna
Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.

Carol van Voorst lýkur fljótlega störfum hér á landi og hafði óskaði eftir kveðjufundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, eins og hefð er fyrir. Voru sendiherrahjónin á leið á þann kveðjufund með forseta er símtalið barst.

Örnólfur baðst undan viðtali, en í skýringargrein frá skrifstofu forseta kemur fram að fyrir mistök hafi erindi verið sent prótókollstjóra utanríkisráðuneytisins þess efnis að ákveðið hefði verið að sæma Voorst fálkaorðunni án þess að formlega hefði verið gengið frá ákvörðuninni.

Utanríkisráðuneytið var í kjölfarið beðið að fela sendiráði Íslands í Washington að afla heimildar stjórnvalda í Bandaríkjunum fyrir veitingu orðunnar.

Skrifstofa forseta Íslands tekur fram í yfirlýsingu sinni að um orðuveitingar til sendiherra gildir föst venja gagnvart Norðurlöndum og fáeinum öðrum ríkjum, sem feli í sér að sendiherrarnir hljóta orðu fyrir störf sín frá ríkinu sem þeir störfuðu í.

„Þessi regla gildir hins vegar ekki um samskipti margra landa, meðal annars ekki um samskipti Íslands og Bandaríkjanna, enda hafa margir af sendiherrum Bandaríkjanna á Íslandi ekki fengið fálkaorðuna.

Á síðustu áratugum hafa þannig aðeins þrír sendiherrar Bandaríkjanna hlotið fálkaorðuna, Nicholas Ruwe, Marshall Brement og Charles Cobb,“ segir í yfirlýsingunni.

Forseti Íslands hafi beðið Voorst afsökunar á þessum mistökum á kveðjufundi sem hann átti með sendiherranum 24. apríl sl.

Ekki borist formleg afsökun

Að því er fram kom í Kastljósi var sendiherrann hins vegar ósáttur við hið óvænta símtal. Þá mun Voorst hafa túlkað orð forseta Íslands kvöldið á Bessastöðum þannig að orðuna fengju aðeins „þeir sem hennar væru verðir“.

Bandaríska sendiráðið mun ekki senda frá sér formlega yfirlýsingu vegna málsins, að sögn Kathleen Eagan, talsmanns sendiráðsins. „Þetta er búið og gert,“ segir hún. „Við fengum tilkynninguna um orðuveitinguna og áttum von á að hún [Voorst] fengi fálkaorðuna og það eina sem hægt er að segja er að það er á valdi forsetaskrifstofunnar og ríkisstjórnar Íslands hverjir hljóta orðuna.“ Spurð hvort formleg afsökunarbeiðni hafi borist sendiráðinu segir hún svo ekki vera.„

Morgunblaðið greinir einnig frá því að alls hafi 12 einstaklingar, þar af einn útlendingur, hlotið fálkaorðuna það sem af er þessu ári. Í fyrra var fálkaorðan veitt 40 einstaklingum, þar af einum erlendum ríkisborgara.

Forsetinn hefur sjálfdæmi um orðuveitingu

Í forsetabréfi um hina íslensku fálkaorðu eru fyrstu 4 greinar svohljóðandi:

1. gr.

Orðunni má sæma innlenda einstaklinga eða erlenda fyrir vel unnin störf í þágu þjóðarinnar, einstakra þjóðfélagshópa eða landshluta, eða í þágu mikilvægra og góðra málefna á Íslandi eða á alþjóðavettvangi.

2. gr.

Forseti Íslands er stórmeistari orðunnar.

3. gr.

Nefnd sex manna ræður málefnum orðunnar. Eftir tillögu forsætisráðherra kveður forseti Íslands fimm einstaklinga, sem sæmdir eru og bera heiðursmerki orðunnar, til setu í nefndinni til sex ára í senn. Heimilt er að endurkveðja nefndarmenn til setu í nefndinni, þó ekki lengur en til þriggja ára til viðbótar, og tilnefnir forsætisráðherra formann nefndarinnar. Ráðherra má ekki eiga sæti í nefndinni. Forsetaritari er orðuritari og skipar sjötta sætið í nefndinni. Nefndarstarfið er heiðursstarf án launa.

4. gr.

Orðunefndin gerir tillögur til stórmeistarans um veitingu orðunnar.

Stórmeistari getur, er honum þykir hlýða, veitt orðuna án tillagna orðunefndar.

Þegar íslenskur ríkisborgari er sæmdur orðunni skal ávallt skýra opinberlega frá því hverjir sérstakir verðleikar hafa gert hann verðan sæmdarinnar.

Móðgun við fulltrúa þjóðar og þjóðina sjálfa

Í forsetabréfi um starfsháttu orðunefndar segir síðan í 1. grein um veitingu orðunnar:

Stórmeistari hinnar íslensku fálkaorðu [forseti Íslands] sæmir innlenda einstaklinga og erlenda heiðursmerkinu samkvæmt tillögu orðunefndar. Stórmeistari getur við sérstök tækifæri er honum þykir hlýða veitt orðuna án tillagna nefndarinnar.

Í 7. grein um starfsháttu orðunefndar og veitingu fálkaorðunnar er forseta Íslands síðan veitt heimild til þess að víkja frá ákveðnum reglum, ef honum þykir hlýða.

Af þessu verður ekki annað lesið en forseti Íslands hefði getað gripið inn í og veitt orðuna, hvað sem leið öðrum formsatriðum varðandi veitingu orðunnar til fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna. Með því hefði verið hægt að komast hjá því að móðga sendiherrann og um leið þjóð hans. Þótt það sé ekki föst regla að veita fráfarandi sendiherrum Bandaríkjanna orðu eru engu að síður nokkur dæmi um slíkt. Það getur ekki verið vísvitandi ætlun forsetaembættisins að lítillækka fulltrúa erlends ríkis og þar með þjóð hans.

Hefði þurft að afgreiða formsatriði gagnvart utanríkisráðuneytinu verður ekki öðru trúað en slíkt hefði mátt afgreiða eftir á.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX