amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 13:47
 
Frétt birtist 11. mars 2009 klukkan 08:04

Viðskipti við Kaupþing voru eðlileg

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Lýður og Ágúst Guðmundssynir

Lýður og Ágúst Guðmundssyni, aðaleigendur Exista og Bakkavarar, segja að viðskipti þeirra og fyrirtækja þeim tengdum við Kaupþing, hafi verið eðlileg. Þeir segja að nú fari fram skipulagður undirróður þar sem gögnum um Kaupþing sé markvisst lekið til fjölmiðla.

Þetta kemur fram í grein sem þeir bræður birta í Morgunblaðinu í dag. Tilefni skrifanna er frétt Morgunblaðsins um lán Kaupþings til fyrirtækja sem tengjast hluthöfum og stjórnarmönnum bankans. Meðal annars var yfirlit yfir lán til Exista og tengdra fyrirtækja, sem Lýður og Ágúst, eru ráðandi hluthafar í. Í greininni segja þeir að þegar „rýnt er í tölurnar í Morgunblaðinu sýna þær hins vegar svart á hvítu að viðskipti fyrirtækja sem tengjast okkur bræðrum við Kaupþing eru bæði eðlileg og auðskýranleg.“

Þá segja bræðurnir að fáir myndu fagna meira birtingu rannsóknarskýrslu um aðdraganda að falli bankanna:

„Fáir myndu fagna meira birtingu rannsóknarskýrslu um aðdraganda að falli bankanna en við bræður, enda höfum við tapað gífurlegum fjármunum á ákvörðunum í aðdraganda og í kjölfar bankahrunsins. Eignir okkar eru að mestu tapaðar, þótt við berum það ekki saman við vanda þeirra sem standa frammi fyrir atvinnumissi eða gjaldþroti. Sem stjórnendur og forsvarsmenn stórra fyrirtækja tökum við ábyrgð á okkar þætti í þessari atburðarás. Sú ábyrgð verður hins vegar ekki leidd í ljós af þeim öflum sem nú beita óvönduðum meðulum til þess að hylja eigin mistök og freista þess að gera einstaklinga sem tengjast Kaupþingi að sakamönnum í augum almennings. Það sem við öll þurfum mest á að halda er heiðarlegt uppgjör sem byggist á raunverulegum rannsóknargögnum. Á þeim vettvangi mun ekki standa á okkur bræðrum að svara til þeirrar ábyrgðar sem að okkur snýr.“

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX