amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:20
 
Frétt birtist 21. september 2009 klukkan 09:30

Icesave: Ekki valkostur fyrir ríkis­stjórn að semja um lög sem Alþingi setti

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sjónvarpið
Tryggvi Þór Herbertsson.

Efnahagslegu fyrirvararnir vegna ríkisábyrgðar á Icesave tryggja að hámarksupphæð skuldarinnar er þekkt. Ef lánstíminn er lengdur út í hið óendanlega hafa Íslendingar ekki hugmynd um hver skuldin er í raun. Það skapar óvissu sem seinkar því mjög að traust skapist á Íslandi á alþjóðamörkuðum.

Þetta segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og hagfræðingur í grein sem birtist í Morgunblaðinu og á Eyjunni í dag. Hann segir að hugmynd Breta og Hollendinga að framlengja lánið fram yfir 2024 gangi gegn grunnhugsun efnahagslegu fyrirvarana sem Alþingi lögfesti. Verið sé að breyta láninu í teygjulán. Tryggvi Þór segir að ef lánstíminn er lengdur fram yfir 2024 sé grunnur efnahagslegu forsendnanna brostinn. Það sé „ekkert smámál eins og valdhafarnir virðast vilja telja þingi og þjóð trú um“. Þetta er grundvallarbreyting sem setur málið aftur á byrjunarreit, að mati Tryggva Þórs:

„Það er tvennt í stöðunni núna. Að valdhafarnir fari að lögum og tjái Bretum og Hollendingum að Alþingi hafi sagt sitt síðasta orð og að þeir verði annaðhvort að samþykkja eða hafna fyrirvörunum. Valkosturinn sé að setjast að nýju að samningaborði með fyrirvara Alþingis að leiðarljósi.

Það er ekki valkostur fyrir valdhafana að semja um lög sem Alþingi setti fyrir nokkrum dögum. Munum hverjir umbjóðendur ríkisstjórnarinnar eru. Það eru Íslendingar, ekki Hollendingar og Bretar. Það eru aðrir sem hugsa um þeirra hagsmuni.“

Tryggvi Þór segir að það séu hrein og klár ósannindi að málið muni setja allt endurreisnarstarfið í uppnám:

„Við höfum sýnt alþjóðasamfélaginu með óyggjandi hætti með ríkisábyrgðinni að við viljum semja á sanngjörnum nótum og þau skilaboð hafa komist til skila. Í versta falli seinkar þetta eitthvað afgreiðslu erlendu lánanna sem skiptir litlu sem engu máli fyrir endurreisnina. Efnahagslegu fyrirvararnir tryggja að hámarksupphæð skuldarinnar er þekkt.“

Sjá grein Tryggva Þórs

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX