amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 23. maí 2013 - 04:55
 
Frétt birtist 13. júní 2009 klukkan 08:36

AGS heldur bjartsýnni

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Guillaume Paumier
Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur uppfært hagvaxtarspá sína fyrir næsta ár og reiknar nú með 2,4 prósenta hagvexti á heimsvísu í stað 1,9 prósenta.

Sjóðurinn gefur út heildarspána fyrir fund átta umsvifamestu iðnríkja heims, sem haldinn verður í ítölsku borginni L’Aquila í júlí. Borgin komst í heimsfréttirnar í apríl þegar jarðskjálftar jöfnuðu heimili sextíu þúsund íbúa hennar við jörðu, að því er Vísir greinir frá.

Þar segir enn fremur: „Væntingar AGS eru þvert á spá Alþjóðabankans frá í fyrradag en hann telur samdrátt á heimsvísu munu liggja nær þremur prósentum en þeim 1,7 prósentum sem hann reiknaði með í spá sinni í mars.

Mun fjármálakreppan hafa dregið svo mjög úr fjárfestingum og brennt upp svo mikið fjármagn innan hinna þróaðri hagkerfa að ólíklegt sé að þau nái sér á næstu misserum.

Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal segir mismuninn skýrast af því að AGS og Alþjóðabankinn mæli mismunandi hagvísa.

Blaðið bendir á að fjármálaskýrendur telji verstu hremmingarnar í alþjóðlegu efnahagslífi yfirstaðnar og vænta megi betri tíðar á næsta ári. Bloomberg-fréttaveitan bætir því við að japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan hafi endað í 10.135 stigum í gærmorgun auk þess sem væntingar neytenda hafi aukist nokkuð í Bandaríkjunum. Það glæði vonir manna um að versta efnahagskreppa í manna minnum sé í rénun.

Japanska vísitalan hefur verið á góðu skriði síðan í mars og hafði í gær ekki verið hærri síðan í byrjun október í fyrra, þegar fjármálamarkaðir voru að fara á hliðina í kjölfar gjaldþrots bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers.

Haft er eftir japönskum sérfræðingum að talsverðrar bjartsýni gæti á asískum mörkuðum um þessar mundir, ekki síst í kjölfar birtingar hagtalna í Japan og Kína sem voru ívið betri en almennt hafði verið búist við.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX