amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 18. maí 2013 - 08:24
 
Frétt birtist 12. júní 2009 klukkan 08:44

Eitt af hverjum sex heimilum með mjög þunga greiðslubyrði

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Giulia Sala
Skuldsetning heimilanna er mikil en í flestum tilfellum er greiðslubyrðin viðráðanleg. Eitt af hverjum sex heimilum er með mjög þunga greiðslubyrði.

Skuldsetning íslenskra heimila er mikil í alþjóðlegum samanburði þegar hún er mæld í hlutfalli við ráðstöfunartekjur en greiðslubyrði lána virðist engu að síður vera viðráðanleg fyrir flesta en um 77% heimila þarf að verja innan við 40% ráðstöfunartekna í greiðslubyrði íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána.

Þetta kom fram á Málstofu Seðlabankans sem var haldin í gær um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins, en Vísir greinir frá. „Karen Á. Vignisdóttir og Þorvarður Tjörvi Ólafsson hagfræðingar á hagfræðisviði Seðlabankans fluttu framsögu um stöðu heimilanna.

Helstu niðurstöður þeirra eru að þessi 77% heimila með viðráðanlega greiðslubyrði bera um 63% heildarskulda.

Eitt af hverjum sex heimilum er með mjög þunga greiðslubyrði og þarf að verja meira en helmingi ráðstöfunartekna í greiðslur lána. Skuldir þessa hóps heimila sem eru með mjög þunga greiðslubyrði nema um 29% heildarskulda.

Þegar litið er á stöðu barnafjölskyldna kemur í ljós að 78% hjóna með börn eru með viðráðanlega greiðslubyrði en staða einstæðra er erfiðari.

Tæplega helmingur heimila með íbúðalán í erlendri mynt er með yfir 500 þ.kr. í ráðstöfunartekjur á mánuði.

Meira en helmingur heimila með íbúðalán í erlendri mynt er með viðráðanlega greiðslubyrði en tæplega fjórðungur er með mjög þunga greiðslubyrði.

Þau heimili sem búa við þunga greiðslubyrði og viðkvæma eiginfjárstöðu um leið og þau verða fyrir tekjumissi eru í mestri hættu á að lenda í greiðsluerfiðleikum.

Heimili í mjög neikvæðri eiginfjárstöðu í húsnæði hafa tilhneigingu til að tilheyra tekjuhærri hópunum og um helmingur þeirra er með viðráðanlega greiðslubyrði.

Heimili sem eru með þunga greiðslubyrði lána hafa tilhneigingu til að tilheyra tekjulægri hópunum en um 68% þeirra eru enn í jákvæðri eiginfjárstöðu í húsnæði.

Um 2,5% heimila sem eiga íbúðahúsnæði eru bæði í mjög neikvæðri eiginfjárstöðu og með þunga greiðslubyrði lána,“ segir enn fremur í fréttinni.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX