amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:24
 
Frétt birtist 10. júní 2009 klukkan 17:56

Eva Joly segir að Valtýr Sigurðsson ríkis­saksóknari verði að víkja

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Nina-no
Eva Joly segir rannsókn á efnahagshruninu til lítils víki Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari ekki vegna fjölskyldutengsla.

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, segir rannsóknina á efnahagshruninu munu leiða til lítils geri stjórnvöld ekki tvær grundvallarbreytingar. Annars vegar verði Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, að víkja vegna fjölskyldutengsla sem gera hann vanhæfan og hins vegar verði að stórefla embætti sérstaks saksóknara, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

„Ráða þurfi þrjá saksóknara til viðbótar, einn fyrir hvern banka, og að auki bæði endurskoðendur og fleiri erlenda sérfræðinga. Joly segist ekki geta starfað áfram að óbreyttu, hún hafi komið hér til starfa til að leggja þessari gríðarmikilvægu rannsókn lið, en nú virðist sem viljann skorti til að framkvæma hana af þeim krafti sem þarf til að upplýsa stærstu málin og draga þá sem ábyrgir eru fyrir dóm,“ segir enn fremur í fréttinn og þar er tekið fram að Eva Joly verði gestur Kastljóssins klukkan átta í kvöld.

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari er faðir Sigurðar Valtýssonar, forstjóra Exista. Exista var stór hluthafi í Kaupþingi fyrir fall bankans síðastliðið haust.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX