amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:08
 
Frétt birtist 3. apríl 2009 klukkan 10:08

Ungir sjálfstæðis­menn vilja taka upp dollar hér á landi

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Nic McPhee
Stjórn SUS samþykkti í gærkvöldi ályktun um að íslensk stjórnvöld gangi tafarlaust til viðræðna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um upptöku Bandaríkjadals sem lögeyris á Íslandi.

„Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur til þess að nú þegar verði hafið samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að taka upp Bandaríkjadal í viðskiptum á Íslandi. Ungir sjálfstæðismenn telja því miður einsýnt að tilraunir til þess að halda íslensku krónunni séu líklegar til þess að mistakast með miklum tilkostnaði fyrir íslenskt efnahagslíf,“ segir í ályktun SUS.

Þar segir síðan:

„Nýsamþykkt gjaldeyrishöft, sem meðal annars banna útflytjendum að kaupa krónur í erlendum bönkum til heimflutnings, undirstrika hversu vonlaus staðan er. Á meðan gengi gjaldmiðilsins fær ekki að ráðast á markaði munu stjórnvöld þurfa að grípa til sífellt harðari aðgerða til þess að verja gervigengið í Seðlabankanum. Þær aðgerðir fela annars vegar í sér höft og hins vegar fjárútlát.

Í ljósi fyrri reynslu Íslands sem og annarra þjóða af gjaldeyrishöftum gátu stjórnmálamenn sagt sjálfum sér að óumflýjanleg afleiðing þeirra er myndun tvöfalds gengis. Gengi íslensku krónunnar á Íslandi er of hátt skrifað, og erlendis er gengi hennar of lágt. Seðlabankinn niðurgreiðir þannig krónuna á íslenskum markaði. Mismunurinn sem myndast milli þessara tveggja, fölsku gengisskráninga er sóun.

Ungir sjálfstæðismenn skora á stjórnmálamenn allra flokka að láta lokið baráttu við vindmyllur. Annað hvort þarf að gefa viðskipti með krónuna frjáls og taka þeim afleiðingum sem það hefur í för með sér, eða að taka upp annan gjaldmiðil sem nýtur trausts í alþjóðlegum viðskiptum. Sú leið að taka upp annan gjaldmiðil er líklegri til árangurs heldur en áframhaldandi og síaukin höft í viðskiptum og stórkostleg fjárútlát Seðlabankans og ríkissjóðs.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX