
Á sama tíma og aukinnar bjartsýni gætir um hagvöxt í helstu iðnríkjum heims í ár er svartsýnin vaxandi varðandi hagvaxtarhorfur hér á landi. Sést þetta vel í tveim hagspám sem komu út í þessari viku, þ.e. annars vegar spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) fyrir efnahagsástandið í heiminum sem birt var á þriðjudaginn og hins vegar efnahagspá Seðlabankans sem birt var á miðvikudaginn. Endurreisnarstarfið í kjölfar lausafjárkreppunnar sem reið yfir fjármálaheiminn á árinu 2008 hefur verið mun erfiðara hér en víðast hvar og birtist það nú í því að íslenska hagkerfið situr eftir í samdrætti á sama tíma og dágóður hagvöxtur er komin víðast hvar í löndunum umhverfis okkur, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
Þar segir enn fremur:
„Í efnahagsspá AGS er spáin fyrir hagvöxt í heiminum í ár hækkuð um 0,8 prósentur frá síðustu spá sem birt var í október á síðasta ári. Spáir sjóðurinn nú 3,9% hagvexti í heiminum í ár sem er vel viðunandi vöxtur. Spáir stofnunin því að helstu iðnríki heims vaxi um 2,1% í ár og er það einnig 0,8 prósenta hækkun frá síðustu spá þeirra í október. Er það ekki síst aukin bjartsýni um hagvöxt í Bandaríkjunum og í Þýskalandi sem er að valda þessari hækkun, en þessi hagkerfi hafa verið að taka við sér undanfarið eftir erfiðan samdrátt á síðasta ári.
Í ofangreindri efnahagsspá Seðlabanka Íslands fyrir Ísland er reiknað með því að samdrátturinn í ár verði meiri hér á landi en bankinn gerði ráð fyrir í sinni síðustu spá sem kom út í nóvember á síðasta ári. Reiknar bankinn nú með því að samdrátturinn verði 3,4% sem er 1 prósentustigi meiri samdráttur en bankinn spáði áður. Það hefur tafið uppbyggingarstarfið að ekki hafi tekist að leysa deiluna um bætur til innistæðueigenda útibúa Landsbankans og setur það mark sitt á hagvaxtarhorfur.
Ef ofangreindar spár ganga eftir verður meiri munur á þróun landsframleiðslu í ár hér á landi annars vegar og í helstu iðnríkjum hins vegar en var á síðastliðnu ári. AGS reiknar með því að samdrátturinn á heimsvísu hafi verið 0,9% í fyrra og 3,2% í helstu iðnríkjum heims. Hér á landi var samdrátturinn 7,7% að mati Seðlabankans. Munurinn eru 4,5 prósentur gagnvart iðnríkjunum en verður í ár samkvæmt ofangreindum spám 5,5 prósentur. Munurinn á hagvaxtarþróuninni hér á landi og í heiminum umhverfis okkur er því að aukast hvað þetta varðar og Íslandi í óhag. Fjármálakreppan hér á landi er bæði dýpri, meira langvarandi og erfiðari viðureignar en víðast hvar.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.