amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:30
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 09:04

Vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður um liðlega 87 milljarða

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Evra í hrúgu af krónum.

Vöruskiptajöfnuðurinn á síðasta ári var jakvæður um 87,2 milljarða króna. Þetta eru mikil umskipti frá árinu 2008 þegar vöruskiptin voru óhagstæð um 8,9 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 96,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2009 fluttar út vörur fyrir 497,1 milljarð króna en inn fyrir 409,9 milljarða króna fob (445,4 milljarð króna cif). Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, reiknað á fob verðmæti, sem nam 87,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 8,9 milljarða á sama gengi.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 42,0 milljarða króna og inn fyrir 35,0 milljarða króna fob (38,0 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í desember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 26,4 milljarða króna á sama gengi.

Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2009.

Útflutningur

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2009 var heildarverðmæti vöruútflutnings 20,6% minna en á sama tíma árið áður á föstu gengi¹ . Iðnaðarvörur voru 48,2% alls útflutnings og er þetta annað árið í röð, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða. Verðmæti iðnaðarvara var 26,5% minna á árinu 2009 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 42,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% minna en á sama tíma árið áður. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var fryst fiskflök og dróst útflutningur þeirra saman frá árinu 2008. Sölur á skipum og flugvélum drógust saman á árinu.

Innflutningur

Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2009 35,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2009 voru hrá- og rekstrarvara með 30,5% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,6% hlutdeild. Samdráttur varð í nær öllum liðum innflutnings en af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, í innflutningi á fjárfestingavöru og á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flutningatækjum til atvinnurekstrar.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX