amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:28
 
Frétt birtist 27. janúar 2010 klukkan 13:33

Gerson Lehrman Group: Höfnun Icesave dregur úr líkum á greiðslufalli

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
?Íslensk stjórnvöld hafa enn ekki lent í greiðslufalli með nein af lánum sínum og ef Icesave er hafnað munu líkurnar á slíku minnka ennfrekar,? segir í greiningu Gerson Lehrman Group.

Greinandi hjá fjármálaþjónustunni Gerson Lehrman Group segir að fari svo að Icesave frumvarpinu verði hafnað í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu muni það draga úr líkum á greiðslufalli hjá ríkissjóði Íslands, að því er Vísir greinir frá.

Þar segir:

„Íslensk stjórnvöld hafa enn ekki lent í greiðslufalli með nein af lánum sínum og ef Icesave er hafnað munu líkurnar á slíku minnka ennfrekar,“ segir í greiningu Gerson Lehrman Group. „Að vísu er líklegt að Bretar og Hollendingar muni halda áfram pólitísku áreiti sínu gegn Íslandi en ólíklegt er að slíkt hafi neikvæð áhrif á efnahagshorfur landsins til langs tíma.“

Fjallað er um forsögu málsins, það er ákvörðun forseta Íslands sem og greint frá því að núverandi Icesave samkomulag sé álitið óréttlátt, ósanngjarnt og að því hafi verið þvingað upp á íslensk stjórnvöld undir þrýstingi frá Bretum og Hollendingum.

Í greiningunni segir að með því að hafna Icesave frumvarpinu minnki erlendar skuldir Íslands og þar með aukist hæfni landsins til þess að standa undir öðrum skuldum sínum. Samþykkt frumvarpsins aftur á móti gæti, ef allt fer á versta veg, leitt til þess að erlend skuldastaða Íslands yrði nær óbærileg. Þá segir að höfnun Icesave muni létta þrýstingi á gengi krónunnar.

Greinandinn telur að afleiðingarnar af höfnun Icesave verði meira pólitískar en efnahagslegar það er ef Bretar og Hollendingar ákveði að fylgja málinu ekki eftir með harkalegum aðgerðum. Mikill vafi leiki á lagalegum skyldum Íslands á að standa við Icesave skuldbindingar sínar, samkvæmt evrópskum lögum, þar sem Bretar og Hollendingar ákváðu einhliða að borga innistæðurnar út á sínum tíma. Bent er á að Bretar og Hollendingar hafi frá upphafi viljað semja um málið án dómsmeðferðar í réttarkerfi ESB.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX