
Hvers vegna tók Steingrímur J. Icesave úr sáttaferlinu? Þeirrar spurningar spyr Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur í grein í Fréttablaðinu í dag. Málinu hafði verið komið í það ferli með Brussel-viðmiðunum svokölluðu, sem kváðu m.a. á um þverþjóðlega aðkomu fleiri Evrópuríkja að lausn málsins. Ráðherra ákvað þess í stað að hefja tvíhliða viðræður við Breta og Hollendinga - með kunnum afleiðingum.
Í greininni segir Eiríkur:
„Ein áleitnasta ráðgátan í Icesave-málinu, sem nú hefur plagað þjóðin vel á annað ár, er hvers vegna fjármálaráðherra kaus að taka málið úr sáttaferlinu sem því hafði loks verið komið í með Brussel-viðmiðunum svokölluðu, sem kváðu meðal annars á um þverþjóðlega aðkomu fleiri Evrópuríkja að lausn málsins, og ákvað þess í stað að hefja tvíhliða viðræður við Breta og Hollendinga.
Brussel-viðmiðin frá 14. nóvember 2008 voru niðurstaða fjölþjóðlegs sáttaferils sem íslensk stjórnvöld náðu loksins fram eftir fátið sem varð í kjölfar falls bankanna. Áður hafði fjármálaráðherra Íslands meira að segja samþykkt bindandi gerðardóm sem viðsemjandinn hafði nánast í hendi sér og innlend stjórnvöld höfðu í trekk samþykkt undarlegustu skilmála í deilunni. En með Brussel-viðmiðunum, sem samþykkt voru í kjölfar fundar fjármálaráðherra allra ESB-ríkja, undir forsæti Frakka, tókst loks að koma málinu undan krumlu Breta og Hollendinga og inn á hinn sameiginlega vettvang í Brussel - þar sem það átti alltaf heima enda snýst það um sameiginlegar reglur á Evrópska efnahagssvæðinu.
Í viðmiðunum undirgengust íslensk stjórnvöld það eitt að EES-réttur gildi auðvitað hér á landi sem annars staðar á svæðinu en fyrri þvingunarsamningar féllu um leið úr gildi. Á móti fékkst sú mikilvæga viðurkenning að í komandi samningum ætti að taka tillit til sérstakra og fordæmislausra aðstæðna á Íslandi eftir hrun og um leið var pólitísk aðkoma Evrópusambandsins til að miðla málum tryggð. Franski fjármálaráðherrann, Christine Lagarde, gegndi hér lykilhlutverki og utanríkisráðherra Spánar, Miguel Angel Moratinos, tók að sögn undir sjónarmið Íslands á bak við tjöldin.
Þann 5. desember samþykkti Alþingi svo tillögu um að hefja samninga á grundvelli Brussel-viðmiðana. Það var hins vegar aldrei gert. Einhverra undarlegra og enn þá óútskýrðra hluta vegna kaus nýr fjármálaráðherra nefnilega að taka málið úr sáttaferlinu. Í stað þess að gera marghliða þjóðréttarsamning í samstarfi við ESB fól hann pólitískum trúnaðarmönnum sínum að ganga frá einkaréttarlegum lánasamningi við fjármálaráðuneyti Breta og Hollendinga. Getur verið að það hafi verið gert án samráðs við stofnanir ESB eða aðra forsvarsmenn þess?
Á þessum tíma mátti mönnum vera ljóst að tvíhliða viðræður við fjármálaráðuneyti Bretlands og Hollands myndu í öllum tilvikum skila lakari niðurstöðu heldur en yrði með marghliða pólitískri lausn á Evrópuvettvangi - en hlutverk allra fjármálaráðuneyta er að hámarka afkomu eigin ríkissjóðs. Að auki var svo auðvitað ólöglegt að hunsa þingsályktunartillöguna með þeim hætti sem gert var. Því stendur upp á fjármálaráðherra að svara spurningunni: Hvers vegna kaus hann að taka málið úr sáttaferlinu?“
Og Eiríkur heldur áfram:
„Nú geta menn svo sannarlega haft ólíkar skoðanir á réttmæti synjunar forsetans en með henni höfum við nú fengið annað tækifæri til að leita sátta á breiðum grundvelli. Mikilvægt er að grípa þetta örþrönga færi og koma málinu á nýjan leik inn á Evrópuvettvanginn og þannig undan hrömmum fjármálaráðuneyta Bretlands og Hollands. Svo virðist þó að enn sé deilt um það innan ríkisstjórnarinnar, að einhverjir vilji jafnvel frekar fá Norðmenn til að miðla málum heldur en leiðtoga Evrópusambandsins.
Ef rétt er lýsir það annað hvort pólitískri blindu eða vanþekkingu á eðli alþjóðamála. Fyrir utan að eiga mun meira undir Bretum en Íslendingum hafa Norðmenn engin áhrif á Evrópuvettvangi og gagnast því lítið í málafylgju fyrir Ísland í þessu máli. Eina leiðin til að ná betri útkomu er að fá leiðtoga ESB að málinu.
Því miður eru teikn um að pólitísk afstaða til ESB-aðildar blandist með óheppilegum hætti inn í afstöðu sumra íslenskra stjórnmálamanna til málsins. Því er rétt að taka fram að í aðkomu ESB að Icesave-málinu er ekki að finna neina röksemd fyrir Evrópusambandsaðild Íslands - það er allt annað og seinni tíma mál. Ég hef áður lýst efasemdum um hyggindi þess að klofin ríkisstjórn semji um ESB-aðild. Framkvæmdastjórn ESB hefur ekki mikinn hvata til að gefa eftir í aðildarviðræðum við ríki sem hún hefur ekki trú á að hafi nægjanlega tryggt pólitískt bakland til að koma málinu í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslu heima fyrir.“
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.