amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:30
 
Frétt birtist 26. janúar 2010 klukkan 13:08

Fyrningarleiðin kemur niður á sjómönnum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Calum Davidson
?Sameiginlegir hagsmunir sjómanna og útgerðarmanna hafa sennilega aldrei verið jafn rækilega undirstrikaðir og nú þegar sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir þeirri ógn sem stafar af þeirri áætlun stjórnvalda að hefja fyrningu aflaheimilda í haust."

„Það verður engum til góðs þegar upp er staðið ef á að fara að taka kvóta af þeim sem starfa við sjávarútveginn í dag. Þeir einu sem ég hef heyrt mæla þessu bót er menn sem vilja komast inn í útgerð enn eina ferðina. Þessir sömu menn hafa í sumum tilvikum selt sig út úr aflamarkskerfinu mörgum sinnum en komist jafnharðan inn bakdyramegin. Það geta varla talist góð meðmæli með þessum hugmyndum,“ skrifar Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni Eskifirði, í grein sem birtist í Morgunblaðinu um helgina, en til hennar er vitnað á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna. Grein hans má lesa hér:

Fyrningarleiðin kemur niður á sjómönnum

„Sameiginlegir hagsmunir sjómanna og útgerðarmanna hafa sennilega aldrei verið jafn rækilega undirstrikaðir og nú þegar sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir þeirri ógn sem stafar af þeirri áætlun stjórnvalda að hefja fyrningu aflaheimilda í haust. Þessar hugmyndir koma til með að bitna á sjómönnum, sem hafa valið sér þennan starfsvettvang til framtíðar, launum þeirra og þar með afkomu fjölskyldna þeirra.

Sjómenn sem starfa hjá íslenskum útgerðum eru í flestum tilfellum búnir að starfa lengi hjá sömu útgerð og hafa þar með tekið þátt í veiðum til margra ára innan sömu útgerðar. Í sumum tilfellum hafa sjómenn og útgerðir í sameiningu tekið þátt í að afla þess kvóta sem er oftast vistaður á því skipi, sem viðkomandi sjómaður starfar á, þó möguleiki sé á hagræðingu innan útgerðar.

Tökum sjálfan mig sem dæmi. Ég hef starfað á sama skipinu, Jóni Kjartanssyni SU 111 hjá Eskju hf., með nánast sama mannskap í 21 ár. Við tókum þátt í frumkvöðlastarfi á veiðum á norsk-íslenskri síld, kolmunna og nú makríl. Oft hefur þetta verið gert við erfiðar aðstæður og verið stíft sótt til að afla okkur veiðireynslu. Ef við hefðum ekki sótt í kolmunnann t.d. vestur af Írlandi ættum við lítinn kvóta í dag. Það gleymist oft í þessu samhengi að veiðireynsla okkar er um leið veiðireynsla Íslands. Á það reynir í milliríkjasamningum um skiptingu veiðiheimilda úr deilistofnum sem flakka um allan sjó.

Það verður engum til góðs þegar upp er staðið ef á að fara að taka kvóta af þeim sem starfa við sjávarútveginn í dag. Þeir einu sem ég hef heyrt mæla þessu bót er menn sem vilja komast inn í útgerð enn eina ferðina. Þessir sömu menn hafa í sumum tilvikum selt sig út úr aflamarkskerfinu mörgum sinnum en komist jafnharðan inn bakdyramegin. Það geta varla talist góð meðmæli með þessum hugmyndum.

Og hver eru svo rökin fyrir fyrningu? Engin að því er virðist. Allt er þetta gert að lítt eða óhugsuðu máli, bara til að koma til móts við háværar raddir fólks, sem fæst hefur nennt að hafa fyrir því að setja sig inn í málefni sjávarútvegsins. Fyrningarleiðin er öllum til tjóns. Hún elur á ótta hjá þeim sem við sjávarútveginn starfa og á eftir að stöðva alla framþróun í atvinnugreininni.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX