
Lækkun vísitölu neysluverðs nú eykur líkur á því að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á morgun. Peningastefnunefnd bankans fundar nú í dag og mun tilkynna á morgun um ákvörðun sína.
Greining Íslandsbanka reiknar með því að nefndin ákveði að lækka vexti bankans lítillega, og þá á þann veg að vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækki um 0,25 prósentur í 8,25% en vextir á viku veðlánum (hinir hefðbundnu stýrivextir) um 0,5 prósentur í 9,5%, að því er fram kemur í tilkynningu hennar.
Þar segir enn fremur:
„Þetta er breyting frá okkar fyrri spá en fyrir birtingu vísitölu neysluverðs í morgun reiknuðum við með því að peningastefnunefndin myndi halda stýrivöxtum bankans óbreyttum á morgun.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar vegna ákvörðunar hennar 9. desember síðastliðinn kemur fram að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Nú hefur verðbólgan hjaðnað umtalsvert frá síðustu vaxtaákvörðun og gengi krónunnar haldist nokkuð stöðugt. Því virðist sem þau tvö skilyrði sem peningastefnunefndin setur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds vera til staðar.
Þegar peningastefnunefndin gaf út yfirlýsingu sína í desemberbyrjun var verðbólgan 8,6%. Nú er hún 6,6%. Hluti af verðbólgunni er bein afleiðing af hækkun óbeinna skatta sem peningastefnunefndin mun líta framhjá við ákvörðun sína. Ef litið er á verðbólguna samkvæmt fastskattavísitölunni þá hefur verðbólgan þannig mælt farið úr 7,7% í 5,2% frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndarinnar. Þessu til viðbótar eru vísbendingar um að framleiðsluslakinn í hagkerfinu fari vaxandi, og er samdráttur landsframleiðslu umtalsverður og atvinnuleysi að aukast enn. Þannig ætti verðbólgan að hjaðna enn á næstunni og reiknum við með því að sú skoðun verði sett fram í nýrri efnahagsspá Seðlabankans sem birt verður á morgun.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.