
Svartsýni íslenskra neytenda minnkaði lítillega á milli desember í fyrra og janúar í ár. Væntingavísitala Gallup sem birt var í morgun hækkaði um 3,1 stig á milli þessara tveggja mánaða og stendur nú í 37,1 stigum en fleiri svarendur eru neikvæðir en jákvæðir á stöðu og horfur í efnahagslífinu þegar vísitalan mælist undir 100 stigum. Það var Capacent Gallup sem birti þessar niðurstöður könnunnar sinnar nú í morgun, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
Þar segir enn fremur:
„Þrátt fyrir að svartsýni í garð efnahags- og atvinnuástandið sé nokkuð ríkjandi meðal íslenskra neytenda þá er gildi Væntingavísitölunnar nú töluvert hærra en það var á sama tíma fyrir ári og aðeins hærra en það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna. Í janúar í fyrra mældist vísitalan 19,5 stig sem er lægsta gildi hennar frá upphafi en frá hruni bankanna hefur hún að meðaltali verið um 33 stig. Er því ljóst að íslenskir neytendur telja ástandið nú ekki jafn slæmt og fyrir ári og ekki eins svart og það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna.
Allar undirvísitölur hækka
Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar hækkuðu á milli desember og janúar sem bendir til þess að væntingar neytenda til núverandi ástands í efnahags og atvinnumálum jafnt og ástandsins eftir sex mánuði séu aðeins meiri nú en fyrir mánuði síðan. Mat á núverandi ástandi hækkar um ríflega 2 stig og mælist 8,6 stig en væntingar til ástandsins í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði hækka um tæp 4 stig og mælast nú 56,1 stig. Rúmlega 78% svarenda telja að efnahagsástandið sé slæmt um þessar mundir og rúm 54% þeirra telur að atvinnumöguleikar séu litlir. Þá telja um 44% svarenda að efnahagsástandið verði verra eftir 6 mánuði og um 31% að atvinnumöguleikarnir verði minni eftir þann tíma. Einnig telja rúm 39% svarenda að heildartekjur þeirra muni lækka á næstu sex mánuðum.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.