amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:27
 
Frétt birtist 26. janúar 2010 klukkan 10:48

Hag­fræðingur SI: Verðbólguþróunin merki um samdrátt

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

„Vissulega er það ánægjulegt að verðbólgan skuli vera hjaðna en verðbólguþróunin leiðir hugann hins vegar af orsökum minnkandi verðbólgu og þeirrar staðreyndar að vextir eru hér enn mjög háir,“ segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins., á síðu samtakanna. „Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands lækkaði vísitala neysluverðs um 0,31% í janúar frá fyrra mánuði en án húsnæði breyttist vísitalan ekki. Verðbólgan mælist nú 6,6% en síðustu þrjá mánuði er verðbólga á ársgrunni 3,7%, segir enn fremur á síðunni.

„Lækkun á fasteignaverði og útsölur eru að draga verðbólguna niður en skattahækkanir eru hinsvegar að ýta undir hækkandi verðlag. Þessi þróun er skýrt merki þess að eftirspurnarþrýstingur í hagkerfinu er enginn en um leið er forsenda þess að halda stýrivöxtum háum brostin. Að því er virðist duga gjaldeyrishöftin til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta úr landinu og því er óþarfi að halda vöxtum háum í sama tilgangi. Til að koma hagkerfinu í gang og vinna gegn atvinnuleysi þarf að koma fjárfestingum af stað. Áframhaldandi háir vextir eru góð leið til að tryggja að svo verði ekki“ segir Bjarni Már.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX