amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. september 2010 - 08:25
 
Frétt birtist 25. janúar 2010 klukkan 19:15

Fyrningarleið – hvað veit ég?

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Alexander Browne
Ég veit að fyrningarleið er aðför að lífskjörum, segir Björn Valdimarsson.

„Ég veit að bæjarfélagið mitt byggir á útgerð og stór hluti útsvarstekna þess kemur frá sjómönnum. Ég veit að þjónustufyrirtæki í Fjallabyggð byggja beint og óbeint á tekjum sem verða til í sjávarútvegi ... Ég veit að fyrningarleið er aðför að lífskjörum íbúa Fjallabyggðar,“ segir m.a. í færslu Björns Valdimarssonar, markaðsstjóra Ramma hf., en til hennar er vitnað á síðu Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Færsla Björns fer hér á eftir:

Ég veit að til þess að búa til 1 milljón króna í verðmæti þarf frystitogari að veiða og vinna um 2,7 tonn af þorski.

Ég veit að þessi milljón skiptist milli áhafnar og útgerðar þannig að áhöfnin fær um 430 þús. krónur í sinn hlut en útgerðin 570 þús. krónur.

Ég veit að ef Ríkið innkallar veiðiheimildir og útgerðin þarf að leigja þær aftur t.d. á 100 kr. kílóið af þorski, og ef lög og kjarasamningar breytast ekki, þá fengi áhöfnin áfram 430 þús. krónur í sinn hlut en útgerðin fengi 300 þús. krónur í sinn hlut og Ríkið 270 þús. krónur í sinn hlut.

Ég veit að 300 þúsundin sem útgerðin fær í sinn hlut duga ekki fyrir útgerðarkostnað.

Ég veit að þetta gengur ekki upp.

Ég veit að ef lögum og samningum er breytt þannig að leigan af Ríkinu er tekin af óskiptu aflaverðmæti þá fengi áhöfnin 314 þús. krónur í sinn hlut, útgerðin 416 þús. krónur og Ríkið 270 þús krónur.

Ég veit að hvorki áhöfn né útgerð þola 27% lækkun á ráðstöfunartekjum.

Ég veit að þetta dæmi gengur heldur ekki upp.

Ég veit að bæjarfélagið mitt byggir á útgerð og stór hluti útsvarstekna þess kemur frá sjómönnum.

Ég veit að þjónustufyrirtæki í Fjallabyggð byggja beint og óbeint á tekjum sem verða til í sjávarútvegi.

Ég veit að launalækkun sjómanna þýðir samdrátt í þjónustu við bæjarbúa og minni framkvæmdir í sveitarfélaginu.

Ég veit að um 90% aflaheimilda eru á landsbyggðinni.

Ég veit að með fyrningarleið er verið að leggja birðar á íbúa landsbyggðarinnar.

Ég veit að ef fyrningarleið verður farinn er atvinnu- og afkomu útgerðar, sjómanna, þjónustufyrirtækja og byggðarlagsins alls stefnt í óvissu.

Ég veit að fyrningarleið er aðför að lífskjörum íbúa Fjallabyggðar.

Björn Valdimarsson.„

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX