amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:27
 
Frétt birtist 25. janúar 2010 klukkan 17:13

Varnarmála­stofnun áætlar að skila um 120 milljónum í rekstrar­afgang

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Varnarmálastofnun áætlar að skila um 120 milljón krónum í rekstrarafgang af fjárheimildum ársins 2009, en sú niðurstaða hefur fengist með verulegu aðhaldi í rekstri stofnunarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar.

Þar segir enn fremur:

„Fjárheimild ársins 2009 hljóðaði upphaflega upp á 1.227 milljón krónur, en hún var skert um 50 milljónir á árinu, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar vegna aðhaldsaðgerða. Rekstur ársins 2009 var því um 170 milljón krónum undir upphaflegum fjárheimildum.

Varnarmálastofnun hefur tekist að hagræða með því að draga verulega saman í rekstri og með því að fresta áætluðum viðhaldsverkefnum og kaupum á tækjum. Þjónustusamningum við verktaka hefur verið sagt upp og þeim verkefnum sinnt með því að nýta betur starfsmenn stofnunarinnar. Þá hefur ferðakostnaður hér heima og erlendis verið takmarkaður eins og kostur er.

Á árinu 2008 var Varnarmálastofnun rekin með 313 milljón krónur í rekstrarafgang. Er því uppsafnaður afgangur á fyrstu 18 mánuðum stofnunarinnar áætlaður um 430 milljón krónur. Endanlegar fjárheimildir fyrir árið 2008 lágu ekki fyrir fyrr en með fjáraukalögum 2008. Í ljósi efnahagsástandsins, kröfu um hagræðingu og aðhald í ríkisrekstri sem og stöðu íslensku krónunnar hefur einungis nauðsynlegustu verkefnum á sviði viðhalds mannvirkja og kerfa verið sinnt frá stofnun Varnarmálastofnunar. Frá upphafi hefur stofnunin í hvívetna sýnt ábyrgð í meðferð fjármuna.

Að störfum er nefnd fimm ráðuneyta sem mun í lok febrúar leggja fram tillögur um framtíð Varnarmálastofnunar. Á meðan annað hefur ekki verið ákveðið sinnir Varnarmálastofnun þeim verkefnum sem henni hafa verið falin með varnarmálalögum og ákvörðun utanríkisráðuneytis.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX