amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:28
 
Frétt birtist 25. janúar 2010 klukkan 12:04

Greining Íslandsbanka reiknar með óbreyttum stýrivöxtum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Seðlabanki Íslands.

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar SÍ verður kynnt á miðvikudaginn og reiknar Greining Íslandsbanka með því að nefndin ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni. Þá á Greiningin von á aukinni verðbólgu vegna skattabreytinga.

Í yfirliti Greiningarinnar segir:

„Nokkrir mikilvægir hagvísar verða birtir nú í vikunni en auk þess mun peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (SÍ) tilkynna ákvörðun sína um stýrivexti og því samhliða mun bankinn gefa út fyrsta hefti Peningamála á árinu. Jafnframt má vænta þess að matsfyrirtækið S&P kveði úr um nú í vikunni hvort að það telji ástæðu til þess að lækka lánshæfiseinkunn ríkissjóð um eitt til tvö þrep en fyrirtækið hefur sjálft lýst því yfir að það búist við að komast að niðurstöðu um það fyrir janúarlok. Eins og kunnugt er setti S&P Ísland á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum nýverið vegna hættu á töfum á endurskoðun efnahagsáætlunar AGS og stjórnvalda í kjölfar synjunar forsetans á undirskrift Icesave-laganna. Af tilkynningu þess sem kom út að því tilefni og nýlegu viðtali Bloomberg-fréttaveitunnar við Moritz Kraemer, forstöðumann fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku hjá S&P, má ráða að ef ekki verður kominn skriður á efnahagsáætlunina og línur orðnar skírar varðandi fjármögnun hennar á næstu dögum muni Ísland líklega falla niður úr fjárfestingarflokki á einkunnaskala S&P.

Verðbólga og væntingavísitalan

Á morgun mun Hagstofan birta vísitölu neysluverðs (VNV) fyrir janúar. Spáum við að VNV muni hækka um 0,9% í mánuðinum og ef það gengur eftir hækkar verðbólga úr 7,5% í 7,9%. Helsta ástæða hækkunarinnar eru skattbreytingar, en auk þess munu, eins og jafnan í janúarmánuði, togast á hækkunaráhrif af áramótaendurskoðun gjaldskráa og lækkunaráhrif vegna útsala. Auk þess er líklegt að húsnæðisverð lækki nokkuð í mánuðinum.

Á morgun mun Capacent Gallup birta væntingavísitölu sína fyrir janúarmánuð. Í desember lækkaði vísitalan annan mánuðinn í röð og mældist 34 stig. Þetta bendir til þess að svartsýni í garð í garð efnahags- og atvinnuástandsins hafi aukist á meðal íslenskra neytenda og að þeir hafi langt í frá verið bjartsýnir á horfur í þeim efnum í árslok, sem kemur eflaust fáum á óvart enda mjög erfitt ár að baki í efnahagslegu tilliti.

Reiknum með óbreyttum vöxtum SÍ

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar SÍ verður kynnt á miðvikudaginn og reiknum við með því að nefndin ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni. Í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar vegna síðustu vaxtaákvörðunar kom fram að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og verðbólga hjaðni í samræmi við spár, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Við síðustu vaxtaákvörðun stóð evran í tæplega 183 krónum en er nú um 180 krónur. Verðbólgan var þá 8,6% og fór niður í 7,5% í desember sem var í samræmi við spár. Ef spá okkar um 0,9% hækkun VNV í janúar gengur eftir mun verðbólgan hækka í 7,9% sem er þó engu að síður minni verðbólga en var við síðustu vaxtaákvörðun. Virðast þar af leiðandi þau tvö skilyrði sem nefndin setur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds hafi skapast frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar.

En að fleiru er að hyggja. Ákvörðun forsetans um að vísa Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur skapað verulega óvissu um framvindu efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS sem og lánin frá Norðurlöndunum. Í kjölfarið hefur áhættuálag á íslenska fjáreignir hækkað verulega og lánshæfismat ríkissjóðs versnað. Áætlað var að annarri endurskoðun áætlunarinnar yrði lokið fyrir janúarlok en teljast má líklegt að endurskoðunin muni frestast fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave þann 6. mars. Teljum við að sú mikla óvissa sem hefur skapast í kjölfar ákvörðun forsetans valdi því að bankinn ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum nú, þó svo að forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds finnist í þróun verðbólgu og gengi krónunnar. Við útilokum þó ekki smávægilega lækkun, sérstaklega í ljósi ummæla seðlabankastjóra Más Guðmundssonar sem lýsti því yfir fyrir stuttu að töfin á Icesave málinu þurfi ekki að koma í veg fyrir lækkun stýrivaxta nú á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndarinnar.

Vöruskipti við útlönd árið 2009

Á föstudaginn mun Hagstofan m.a. birta tölur um fjölda gjaldþrota fyrirtækja í desember 2009 og vöruskipti við útlönd í janúar til desember 2009. Bráðabirgðatölur fyrir desembermánuð bentu til þess að afgangur af vöruskiptum hafi verið tæpir 7 ma.kr. í mánuðinum. Samkvæmt þeim er því útlit fyrir að afgangur af vöruskiptajöfnuði hafi numið um 73 mö.kr. á síðasta ári. Er það mikill viðsnúningur frá árinu 2008 þegar tæplega 7 ma.kr. halli var á vöruskiptum við útlönd, en munurinn skýrist af stærstum hluta af þriðjungs magnsamdrætti innflutnings á milli ára. Reynast tölurnar rétta nam afgangur af vöruskiptum um 5% af áætlaðri vergri landsframleiðslu síðasta árs.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX