amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:35
 
Frétt birtist 25. janúar 2010 klukkan 09:12

Aflaverðmætið jókst um 15 milljarða á fyrstu tíu mánuðum liðins árs

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Calum Davidson
Húsavíkurhöfn

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 95 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2009, samanborið við tæpa 80 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 19,2% á milli ára. Aflaverðmæti í októbermánuði nam 9,7 milljörðum króna miðað við 9,4 milljarða í október 2008. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið tæpir 67 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 17,6% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 57 milljörðum. Verðmæti þorskafla var 29,4 milljarðar og jókst um 12,7% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 13 milljörðum, sem er 2,4% aukning milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 8,2 milljörðum, sem er 18,6% aukning frá fyrstu tíu mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 13,4% milli ára í 5,7 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 34,5% miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam 8,4 milljörðum króna í janúar til október 2009 sem er 71,1% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 9,2% milli ára og nam tæpum 19 milljörðum króna frá janúar til október 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 10,4 milljörðum samanborið við 8 milljarða árið 2008 og makríl að verðmæti 4,6 milljarðar, samanborið við 3,5 milljarða fyrir sama tímabil árið 2008.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 35,4 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins og jókst um 16,7% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 15,6% milli ára og nam 12,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 33,4 milljörðum, samanborið við rúma 26 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 11,6 milljörðum, sem er 16,7% aukning miðað við tímabilið janúar til október 2008.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX