amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:31
 
Frétt birtist 24. janúar 2010 klukkan 20:00

Þreifingar um hvort grundvöllur sé fyrir nýju Icesave-samkomulagi

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Þreifingar standa enn um hvort grundvöllur sé fyrir nýju Icesave-samkomulagi við Breta og Hollendinga.

Þreifingar standa enn um hvort grundvöllur sé fyrir nýju Icesave-samkomulagi við Breta og Hollendinga. Talið er að krafist verið þverpólitískrar yfirlýsingar um að 20.000 evra lágmarkstrygging verði greidd, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

Þar segir:

„Undanfarna daga hefur verið unnið að því að kanna grundvöll fyrir nýju Icesave-samkomulagi. Ráðherrar hafa sagt um nokkurt skeið að það þurfi að liggja fyrir á næstu dögum hvort slíkt sé fyrir hendi. Helgin hefur aðallega farið í þreifingar stjórnvalda við Breta, Hollendinga og önnur Evrópuríki annars vegar og stjórnarandstöðuna hér á landi hins vegar.

Að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra hafa engir formlegir fundir farið fram með stjórnarandstöðunni og á hann ekki von á að það gerist í dag. Eitthvað virðist þó hafa þokast í samkomulagsátt síðustu daga og því ekki útilokað að það semjist um einhvers konar þverpólitíska sameiginlega yfirlýsingu. Slíkt er almennt talinn grundvöllur fyrir því að Bretar og Hollendingar sé tilbúnir til nýrra samninga.

Stjórnarliðar sem fréttastofa ræddi við meta stöðuna þannig að þverpólitíska yfirlýsingu þurfi um að Ísland standi við lágmarkstrygginguna, ríflega 20 þúsund evrur á hvern reikning. Fyrr væri ekki grundvöllur fyrir nýjum samningum.

Steingrímur vildi ekki staðfesta þessa túlkun á stöðunni og vildi raunar ekki tjá sig frekar um málið en sagði þó að lausn þyrfti að liggja fyrir sem allra fyrst. Tíminn væri að hlaupa frá okkur. Það virðist því fátt benda til þess að það liggi fyrir um helgina hvort grundvöllur sé fyrir nýjum samningum við Breta og Hollendinga, þó að fyrir helgi hafi verið stefnt að því. Eftir því sem næst verður komist verður málið rætt á þingflokksfundum stjórnarflokkanna á morgun.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX