amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:34
 
Frétt birtist 23. janúar 2010 klukkan 12:17

Ráðherra hyggst setja strangar reglur um makrílveiðar

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hyggst setja strangar reglur um makrílveiðar. Með þeim verði ýtt undir vinnslu til manneldis og verðmæti margfölduð, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Kvóta verður skipt á skip, en einnig á skipaflokka eftir veiðarfærum. Leyft verður að veiða samtals 130 þúsund tonn af makríl á árinu.Vinna er hafin í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu við reglusmíðina.

Undanfarin ár hefur makríll veiðst innan íslensku lögsögunnar en aðeins verið ákveðinn heildarkvóti og að öðru leyti hefur mönnum verið frjálst hvernig veiðunum hefur verið hagað. Gagnrýnt hefur verið að flotinn hafi stundað kraftveiðar á makríl þar sem meira var hugsað um að koma sem mestu á land heldur en að gera sem mest verðmæti úr aflanum. Þó hefur vinnsla og frysting aukist og verðmætin um leið. Áætlað er að í fyrra hafi heildarverðmæti makrílaflans verið um 10 milljarðar króna.

Jón Bjarnason segir væntanlegar reglur miðast við að auka verðmætin enn frekar. Áhersla sé lögð á að hann fari sem mest til manneldis og að mjög háleitt markmið verði sett í þeim efnum.

Veiðiheimildum verður skipt en hlutföll eru enn ekki ákveðin. Væntanlega verður þó miðað við að stærstur hlutinn fari til stórskipanna sem hafa veitt makrílinn. Einnig verður hluti heildarkvótans tekinn frá fyrir aðrar veiðiaðferðir, þá með smærri skipum, þar sem veitt verði hugsanlega á króka, í net eða jafnvel gildrur. Jón segist hafa óskað eftir hugmyndum frá sjómönnum um mögulegar veiðiaðferðir.

Tíu milljarða verðmæti makrílsins er væn búbót hvort heldur fyrir þjóðarbúið í heild eða útgerð og sjómenn sérstaklega. Jón leggur áherslu á að auka verðmætið með góðri stýringu og góða samvinnu við sjómenn og vinnslu. Þannig væri hægt að þrefalda verðmæti makrílaflans.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX