amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. september 2010 - 08:47
 
Frétt birtist 5. janúar 2010 klukkan 13:01

Eftir ákvörðun forsetan ríkir óvissa um lánshæfismat ríkis­sjóðs

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ed
Seðlabanki Íslands. Eftir yfirlýsingu forseta Íslands um að undirrita ekki lögin um Icesave-frumvarpið er ljóst að veruleg óvissa ríkir um lánshæfismat ríkissjóðs, segir Greining Íslandsbanka.

Eftir yfirlýsingu forsetans um að undirrita ekki lögin um Icesave-frumvarpið er ljóst að veruleg óvissa ríkir um lánshæfismat ríkissjóðs, segir Greining Íslandsbanka. „Síðastliðinn fimmtudag greindi matsfyrirtækið S&P frá því um leið og það staðfesti lánshæfismat ríkissjóðs að það hefði breytt horfum þess úr neikvæðum í stöðugar. Er þetta í fyrsta sinn sem S&P sendir frá sér tilkynningu um lánshæfismat ríkissjóðs síðan í lok nóvember 2008 þegar það lækkaði síðast lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs. Er nokkuð ljóst að fyrirtækið hafi beðið áttekta eftir að Icesave-málið tæki að skýrast enda segir í tilkynningu þess að endurskoðunin á horfum byggist á samþykkt Alþingis á Icesave-frumvarpinu sem átti sér stað síðla kvölds daginn áður. Taldi fyrirtækið nokkuð víst að forseti Íslands myndi undirrita lögin, en nú er ljóst að annað kom á daginn. Fyrir erlendar skuldbindingar eru lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs BBB-/A-3 en fyrir innlendar skuldbindingar BBB+/A-2.

Með Icesave eru sköpuð skilyrði til þess að losa um gjaldeyrishöft

Í tilkynningu S&P, sem birt er á heimasíðu Seðlabankans, segir að þótt Icesave-samningurinn komi til með að auka verulega á almenna skuldabyrði ríkissjóðs þá sé samþykkt hans mikilvægt skref í átt að hægt verði að greiða út lánið frá AGS og tvíhliða lán frá Norðurlöndum. Þetta fjármagn mun styrkja gjaldeyrisvarasjóðs Seðlabankans og þar með lausafjárstöðu Íslands sem er veik um þessar mundir. Með þessu eru sköpuð skilyrði til þess að mögulegt verði að losa um þau gjaldeyrishöft sem sett voru í nóvember 2008.

Áhersla S&P á lausn Icesave-málsins er síður en svo einsdæmi enda hafa matsfyrirtækin Moody´s og Fitch einnig lagt áherslu á að lausn sé mikilvæg fyrir lánshæfismat ríkissjóðs. Þann 11. nóvember lækkaði Moody´s lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir innlendar og erlendar skuldbindingar úr Baa1 í Baa3 og breytti horfum um þær úr neikvæðum í stöðugar. Í tilkynningu fyrirtækisins kom m.a. fram að lánafyrirgreiðsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Icesave væri forsenda þess að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs yrði ekki lækkuð. Þann 23. desember greindi Fitch frá því um leið og það staðfesti lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs að það hefði tekið þær af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum en horfur um einkunnir væru þó enn neikvæðar. Í tilkynningu Fitch kom m.a. fram að fyrirtækið teldi að samþykkt Alþingis á Icesave-samkomulaginu gæti verið skammt undan og taldi að það gæti grafið undan lánshæfi ríkissjóðs ef það tæki langan tíma að aflétta gjaldeyrishömlum og koma á stöðugleika í gengismálum. Af framansögðu er nokkuð ljóst að yfirlýsing forsetans um að undirrita ekki lögin gæti haft neikvæð áhrif á lánshæfismat ríkissjóðs,“ segir Greiningin enn fremur.

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX