
Eitthvað verður um birtingu innlendra hagvísa nú í vikunnim segir Greining Íslandsbanka. „Í dag birti Hagstofan tölur um vöruskipti við útlönd á tímabilinu janúar til október og á fimmtudaginn kemur birtir hún bráðabirgðatölur fyrir nóvembermánuð. Á miðvikudag mun Hagstofan svo birta tölur um innflytjendur og einstaklinga með erlenda bakgrunn á árinu 2009 og hagtíðindahefti um vísitölu byggingarkostnað fyrir árið 2009. Í heftinu er birtar töflur um breytingar á byggingarvísitölu síðustu 12 mánuði og fjallað er nokkuð ítarlega um breytingar á helstu undirliði hennar. Á árinu 2008 hækkaði vísitalan um 26,8%. Þar af hækkuðu hreinir efnisliðir um 47,9%, en sambærilegar 12 mánaða hækkanir efnisliða höfðu ekki mælst síðan á árunum 1989-1990. Hreinir launaliðir hækkuðu mun minna, eða sem nemur um 7,8%. Hækkanir á fyrirliggjandi ári hafa verið mun minni og hefur vísitalan einungis hækkað um 4,6%, þar af hafa vinnuliðir lækkað um 2,1% og efnisliðir hækkað um 4,5%.
Á fimmtudaginn áætlar Ferðamálastofa að birta tölur um fjölda erlenda gesta í nóvember. Í október voru erlendir ferðamenn 7,5% færri en í sama mánuði árið 2008, en alls fóru ríflega 30 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifstöð nú í október samanborið við nær 33 þúsund í fyrra. Á hinn bóginn er breyting á milli ára óveruleg, en all hafa farið tæplega 426 þúsund erlendir gestir frá landi á fyrstu 10 mánuðum ársins sem er einungis um 0,1% færri en á sama tímabili fyrir ári. Samhliða þessum tölum birtir Ferðamálastofa einnig tölur um brottfarir Íslendinga erlendis. Ljóst er að versnandi efnahagur og kaupmáttarýrnun á erlendri grundu hefur haft þau áhrif á landinn hefur snardregið úr utanferðum, en frá áramótum hefur brottförum Íslendinga fækkað um heil 42%. Í október var hins vegar minnsti samdráttur í einum mánuði það sem af er ári og voru brottfarir Íslendinga 14,6% færri en í sama mánuði fyrir ári.
Í þessu sambandi má hér nefna að á föstudeginum mun Hagstofan birta tölur um gistinætur og gestakomur á hótelum í október. Þegar þessar tölur er skoðaðar má sjá að það eru ekki einungis utanferðir sem landinn sparar við sig heldur hefur hann einnig dregið verulega úr hótelgistingum. Þannig hafði gistinóttum Íslendinga fækkað um 12% á fyrstu níu mánuðum ársins frá sama tímabili fyrir ári en gistinóttum erlendra ríkisborgara hafði fjölgað um rúm 3% á sama tímabili.
Á föstudaginn mun Seðlabankinn birta tölur um krónumarkað og gjaldeyrismarkað í nóvember, svo og stöðu efnahagsreiknings síns í nóvemberlok. Í lok október var skammtíma gjaldeyrisstaða nettó hjá Seðlabankanum tæpir 224 ma.kr. en gjaldeyrisforði brúttó var þó rétt ríflega tvöfalt meiri, eða sem nemur um 451 ma.kr.
Sama dag mun Seðlabankinn einnig birta raungengi krónunnar í nóvember. Í október síðastliðinn hækkaði raungengi krónunnar annan mánuðinn í röð frá fyrri mánuði, eða um 0,2% á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Á sama tíma hafði nafngengi krónunnar lækkað um 0,8% m.v. vísitölu meðalgengis en vísitala neysluverðs hér á landi hækkað um ríflega 1%. Skrifaðist því hækkun raungengis á vísitölu neysluverðs, þ.e. að verðbólgan hér á landi hafi verið umfram verðbólgu í helstu viðskiptalöndum.
Reikna má með að fjármálaráðuneytið komi til með að birta greiðsluupggjör ríkissjóðs fyrir fyrstu tíu mánuði ársins í vikunni. Þó er ekki vitað nákvæmlega þá dagsetningu sem hún kemur til með að liggja fyrir en við væntum þess að það verði síðar í vikunni. Allt frá ársbyrjun hefur innheimtan verið töluvert minni en reiknað var með í fjárlögum, en tekjustofnar ríkissjóðs hafa dregist verulega saman í kreppunni á sama tíma og kostnaður ríkissjóðs hefur aukist verulega. Gerir fjármálaráðuneytið ráð fyrir í nýjustu þjóðhagsspá sinni að tekjur ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu ársins verði litlar í sögulegu samhengi sem er andstætt við spá þess um útgjöld ríkissjóðs. Þannig áætlar ráðuneytið að tekjur ríkissjóðs komi til með að nema um 28,2% af landsframleiðslu en útgjöld 45,4%,“ segir Greiningin enn fremur.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.