amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 25. maí 2013 - 01:24
 
Frétt birtist 26. nóvember 2009 klukkan 15:28

Heimilin eru ekki afgangsstærð – samstöðufundur á Austurvelli

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Hagsmunasamtök heimilanna boða til mótmælafundar á Austurvelli á laugardaginn. Myndin er frá mótmælum á vellinum í fyrrahaust.

Vegna augljósrar tregðu stjórnvalda til að bregðast af alvöru við forsendubresti lánasamninga hafa Hagsmunasamtök heimilanna boðað nýtt greiðsluverkfall frá 15.nóv.-10.des. Í tilefni af því halda samtökin ásamt Nýja Íslandi útifund á Austurvelli laugardaginn 28.nóv. kl. 15. Allir eru velkomnir til að sýna samstöðu í verki, segir í tilkynningu Hagsmunasamtaka heimilanna.

Þar segir enn fremur:

Hugrekki heimilanna

Það þarf hugrekki til að taka þátt í greiðsluverkfalli. Þátttaka í greiðsluverkfallinu telur um 30 þúsund heimili samkvæmt okkar bestu vitneskju (24% þátttaka samkvæmt óformlegri könnun Bylgjunnar). Á þessum heimilum áætlum við að búi yfir 75 þúsund manns, þ.a. um 50 þúsund fjárráða einstaklingar. Þetta er langt yfir upphaflegar væntingar en í samræmi við þær kannanir sem gerðar hafa verið.

Kjarabarátta 21. aldarinnar snýst um lánakjör, í henni er greiðsluverkfallið vopn fólksins rétt eins og vinnuverkföllin eru vopn verkalýðsbaráttunnar. Til þess að knýja á um breytingar þarf að myndast öflugur þrýstingur og hann verður einungis til með samstöðu fólksins.

Kröfur Hagsmunasamtaka heimilanna eru skýrar og framkvæmanlegar;

  • 1. Engar afskriftir – eingöngu réttlátar leiðréttingar
  • 2. Lán sem hvíla á íbúðarhúsnæði með viðmiðun við gengi erlendra gjaldmiðla verði leiðrétt og yfirfærð í íslenskar krónur frá lántökudegi á gengi þess tíma.
  • 3. Verðtryggð húsnæðislán leiðréttist þannig að verðbætur verði að hámarki 4% á ári frá 1.1.’08.
  • 4. Lög um að ekki verði gengið lengra í innheimtu veðlána en að leysa til sín veðsetta eign.
  • 5. Lög um að við uppgjör skuldar fyrnist eftirstöðvar innan 5 ára og verði ekki endurvakin.
  • 6. Gerð verði tímasett áætlun um AFNÁM VERÐTRYGGINGAR lána hið fyrsta og vaxtaokur verði aflagt.

Heimilin í landinu eru engin afgangsstærð. Þau eru undirstaða þjóðfélagsins og vissulega þess virði að berjast fyrir. Kerfið breytist ekki af sjálfu sér. Þess vegna vilja Hagsmunasamtökheimilanna hvetja alla til að mæta á Austurvöll kl. 15 á laugardaginn og krefjast réttlætis og sanngirni í lánakjörum.„

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX