
Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum heilbrigðis-, félags- og dómsmál um almannatryggingar og velferðarmál. Í ritinu er gefið yfirlit um útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála samkvæmt COFOG-flokkunarkerfi Sameinuðu þjóðanna. Undir þann málaflokk falla ýmsar félagslegar tilfærslur til einstaklinga, s.s. vegna elli, örorku, veikinda, tekjumissis, fæðinga og atvinnuleysis, og ýmis velferðarþjónusta, einkum við börn, aldraða og fatlaða. Einnig er gerð grein fyrir útgjöldum til almennrar félagsverndar hér á landi samkvæmt ESSPROS-flokkunarkerfinu, en það nær til afskipta opinberra aðila og einkaaðila af félagsvernd. Þá er gerð grein fyrir meginhagstærðum félagsverndar á Norðurlöndum og í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, að því er Hagstofa Íslands greinir frá.
„Af helstu niðurstöðum má nefna að heildarútgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr tæplega 5,7% af landsframleiðslu árið 1980 í ríflega 8,9% af landsframleiðslu 2008, en það samsvarar 132 milljörðum króna á því ári. Hafa velferðarútgjöldin ríflega þrefaldast að magni á tímabilinu (220% vöxtur) miðað við verðvísitölu samneyslu og ríflega tvöfaldast á mann (129% vöxtur). Árið 2008 runnu 413 þúsund krónur til þessa málaflokks á mann samanborið við 181 þúsund krónur í byrjun níunda áratugarins á verðlagi 2008.
Útgjöld hins opinbera vegna almannatrygginga og velferðarmála eru greind niður í níu meginundirflokka. Útgjöld til fjölskyldna og barna er umfangsmesti útgjaldaliðurinn, en til þess málaflokks runnu rúmlega 37,6 milljarðar króna 2008, eða 2,5% af landsframleiðslu. Hækkunin milli ára nam 4 milljörðum króna. Útgjöld vegna örorku og fötlunar námu 34,9 milljörðum króna og hækkuðu um 6,6 milljarða króna milli ára. Þá námu útgjöld vegna öldrunar 33,1 milljarði króna og hækkuðu um 4 milljarða króna milli ára. Framlög vegna atvinnuleysis voru 5,4 milljarðar króna 2008 og hækkuðu um 2,3 milljarða króna frá fyrra ári.
Útgjöld til félagsverndar árið 2008 samkvæmt ESSPROS námu 325,6 milljörðum króna eða 22,1% af landsframleiðslu. Um 40% útgjaldanna 2008 voru vegna slysa og veikinda (heilbrigðismála), en það samsvarar ríflega 8,8% af landsframleiðslu. Til verkefna vegna öldrunar fóru rúmlega 22% útgjaldanna eða 4,9% af landsframleiðslu. Þá vógu útgjöld vegna örorku og fötlunar og sömuleiðis fjölskyldna og barna þungt, en ríflega 13% útgjalda til félagsverndar runnu til hvors verkefnasviðs eða 2,9% af landsframleiðslu. Til fyrrgreindra fjögurra verkefnasviða runnu um 89% heildarútgjalda til félagsverndar.
Samanburður á félagsvernd milli Norðurlanda og ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu sýna að árið 2006 ráðstöfuðu Svíar til dæmis 30,7% af landsframleiðslu sinni til félagsverndar og Danir 29%. Norðmenn aftur á móti 22,6%, Færeyingar 24% og Finnar 26,3%. Á því ári rann 21% landsframleiðslu hér á landi til félagsverndar eða 247 milljarðar króna. Á Evrópska efnahagssvæðinu runnu að meðaltali 26,9% af landsframleiðslu ríkja þess til félagsverndar árið 2006,“ segir Hagstofan enn fremur.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.