AMX opnaði í desember 2008 og varð strax fjölsóttur. Vefurinn óx hratt og varð fljótt miðpunktur skýringa á atburðum í viðskiptalífi og stjórnmálum. Nálgun vefsins var vel tekið og eru mánaðarlegir gestir vel yfir 50.000 samkvæmt mælingu Google Analytics.
AMX fer stöðugt ótroðnar slóðir við miðlun frétta og fréttaskýringa. Uppsetning vefsins er ný af nálinni og er öðruvísi en þekkist meðal íslenskra fréttavefja. Auglýsingasvæði eru öll stór að flatarmáli og staðsett með það í huga að ná til lesenda. Jafnframt er þess gætt að auglýsingar fari aldrei yfir strikið og valdi lesendum óþægindum.
Ómar Örn Ólafsson
Sími 895 8484
Fyrirspurnum er svarað í tölvupósti.