
Helgin var hæg og góð hjá lögreglumönnum á Selfossi og engin meiri háttar óhöpp eða verkefni sem komu upp utan innbrota og þjófnaði, segir í tilkynningu Selfosslögreglunnar.
Þar segir enn fremur:
„Um kl. 01:30 í nótt, mánudag, barst tilkynning frá öryggsverði Securitas um yfirstandandi innbrot í gróðurhús í Hveragerði. Á meðan meðan samtalinu stóð greindi öryggisvörðurinn því að maður hefði komið að honum með exi í hönd. Lögreglumenn fóru á staðinn á forgangshraða á tveimur lögreglubifreiðum. Öryggisvörðurinn var heill á húfi en maðurinn sem var að sniglast við gróðurhúsið var á bak og burt og þrátt fyrir ýtarlega leit fannst hann ekki. Við gróðurhúsið fundu lögreglumenn tösku á hjólum með ýmsum búnaði og verkfærum til að nota við innbrot. Ekki liggur fyrir nánari lýsing af manni þessum en sú að hann hafi verið dökkklæddur og hann látið sig hverfa út í myrkrið. Hann hafði náð að brjóta eina rúðu og greinilega ætlað að stela gróðurhúsalömpum en orðið frá að hverfa þegar öryggisvörðurinn kom. Lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu lögðu lögreglunni á Selfossi lið við að leita að manninum.
Snemma á föstudagsmorgun var tilkynnt um tvo menn sem væru að brjótast inn í skúr við Írafossvirkjun. Lögreglumenn fóru á staðinn og handtóku þar einn mann. Síðar fannst hinn þar skammt frá. Í grenndinni fannst jeppabifreið sem var stolið í Garðabæ fyrr í vikunni. Mennirnir voru færðir í fangaklefa en ekki reyndist unnt að yfirheyra þá fyrr en síðar um daginn vegna þess að þeir voru undir áhrifum fíkniefna. Við nánari rannsókn kom í ljós að þeir höfðu um nóttina brotist inn í grunnskólann á Eyrarbakka. Báðir eru mennirnir með langan brotaferil og var annar þeirra úrskurðaður í síbrotagæslu en nokkur mál sem hann á aðild að eru í rannsóknarferli hjá lögreglu. Í bifreiðinni sem mennirnir voru á fannst hljóðblöndunartæki sem stolið var í innbroti á skemmtistaðinn Útlagann fyrir viku síðan. Mennirnir neituðu aðild að því innbroti. Sögðust hafa fengið bílinn lánaðan en neituðu að segja nánar frá því. Grunur er um að kunningjar mannanna tveggja eigi þátt í innbrotinu í Útlagann og hugsanlega í sumarbústað í Heiðarbyggð í Hrunamannahreppi aðfaranótt þriðjudags. Þaðan var stolið stórum flatskjá og hljómtækjum. Í þeim sumarbústað var þjófavarnarkerfi sem fór í gang. Lögreglumenn fór þegar á staðinn en þjófarnir fundust ekki.
Á laugardagsmorgun var tilkynnt um að skotið hefði verið með riffli á upplýsingatöflu sem er við Kolholtsveg í Flóahreppi. Ekki er vitað hver var þar að verki og lýsir lögregla eftir upplýsingum varðandi verknaðinn. Sími lögreglu er 480 1010.
Lögreglumenn stöðvuðu akstur bifreiðar í gær, sunnudag, í hefðbundnu eftirliti. Í ljós kom að ökumaður var 13 ára. Faðir drengsins var með í bifreiðinni en hann hafði leyft drengnum að aka. Í ljós kom að tryggingar bifreiðarinnar voru ekki í lagi. Faðirinn var kærður fyrir að fela drengnum akstur og mun fá sekt fyrir vanrækslu á vátryggingu.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.