amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 24. maí 2013 - 10:26
 
Frétt birtist 22. september 2009 klukkan 12:25

Erill lög­reglunnar kringum skemmtanahald

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í kringum skemmtanahald helgarinnar.

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið. Nokkur erill var í kringum skemmtanahald helgarinnar og eitthvað um stympingar. Hins vegar liggja engar kærur fyrir, að því er lögreglan greinir frá.

„Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en hann var handtekinn á veitingastaðnum Volcano eftir að hafa hrint einum gesti staðarins á útidyrahurð þannig að rúðan í hurðinni brotnaði. Gestinn sakaði ekki. Hann sýndi einnig mótþróa við handtöku og var ósáttur við aðkomu lögreglu.

Þá var tilkynnt um að rúða hafi verið brotin í verslun Olís við Græðisbraut. Er talið að rúðan hafi verið brotin aðfaranótt sunnudags. Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hugsanlegan geranda eru vinsamlegast beðinir um að hafa samband við lögreglu.

Aðfaranótt sl. sunnudags var lögreglu tilkynnt um að skemmdir hafi verið unnar á bifreið sem stóð við Miðstræti 18. Er talið að sá sem olli skemmdunum hafi verið karlmaður, klæddur í svartan jakka, bláar gallabuxur og með gleraugu. Lögreglan hvetur þá sem einhverjar upplýsingar hafa um málið, eða kannast við aðila sem passar við lýsinguna, um að hafa samband.

Tveir ökumenn fengu sekt vegna brota á umferðarlögum í vikunni sem leið en um er að ræða sekt vegna ólöglegrar lagningar.

Sl. fimmtudag var ungur ökumaður settur í akstursbann eftir að hafa verið búinn að safna fimm punktum í ökuferilsskrá. Þar sem viðkomandi var á bráðabirgðarskírteini, en hann er á átjánda ári, öðlast hann ekki ökuréttindi að nýju fyrr en hann hefur lokið við að sækja sérstakt námskeið og staðist ökupróf að nýju.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en um er að ræða minniháttar tjón og engin slys á fólki,“ segir lögreglan enn fremur.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX