
Vefur Byrs sparisjóðs (www.byr.is) hefur hlotið aðgengisvottun frá Öryrkjabandalaginu og fyrirtækinu Sjá ehf. um að hann standist kröfur um aðgengi fatlaðra. Byr er eina fjármálafyrirtækið hér á landi með slíka vottun auk netbankans S24 sem er í eigu Byrs. Þessi vottun þýðir að vefur Byrs uppfyllir kröfur m.a. blindra og sjónskertra sem notast við skjálesara og hreyfihamlaðra sem ekki geta notað mús. Vottunin nær til íslenskra hluta vefsins, að því er fram kemur í tilkynningu.
„Öryrkjabandalag Íslands fagnar því að Byr Sparisjóður hefur unnið ötullega að því að gera heimasíðu sína aðgengilega fyrir fólk sem þarf að nota sérstakan tölvubúnað eða sérstakt viðmót til að geta nýtt sér þjónustu vefsins,“ segir Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Öryrkjabandalags Íslands. „Þegar við hjá Öryrkjabandalaginu tölum um betra aðgengi þá erum við ekki bara að tala um aðgengi að byggingum og mannvirkjum heldur viljum við líta á þetta orð í stóru samhengi, t.d. aðgengi að upplýsingum og almennt í samfélaginu. Það er von bandalagsins að fleiri fyrirtæki og opinberir aðilar bæti aðgengi að vefjum sínum á komandi mánuðum.“
Vottun vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá ehf. byggist á gátlistanum WAI (Web Accessibility Initiative) og hefur hann verið uppfærður miðað við nýjustu útgáfu sem er alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Netinu. Sjá hefur í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands sniðið listann að íslenskum aðstæðum og hefur hann verið prófaður af notendum með margs konar fötlun.
„Talið er að allt að 10-15% allra notenda búi við einhvers konar fötlun og nokkuð stór hluti þeirra þurfa sérstaka aðstoð eða hjálpartæki til að geta nýtt sér efni og þjónustu á vefjum,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Sjá. „Einnig eykst sífellt þáttur upplýsinga og þjónustu sem einungis er fáanleg af Netinu og verður því að tryggja að allir notendur hafi aðgang að því. Hafa ber í huga að flest af því sem nýtist fötluðum notendum hvað varðar aðgengi á Netinu nýtist ekki síður öðrum almennum notendum. Aðgengilegri vefur er alltaf notendavænni vefur!“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.