amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 22. maí 2013 - 19:47
 
Frétt birtist 10. júní 2009 klukkan 09:05

Sameiginleg forsjá barna algengust eftir skilnað

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Pfly
Frá árinu 2002 hefur verið algengast að foreldrar fari sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað.

Samkvæmt bráðabirgðatölum um lögskilnaði og sambúðarslit 2008 skildu 549 hjón að lögum og 634 pör slitu sambúð. Af þeim 549 lögskilnuðum sem urðu á árinu þurfti að úrskurða um forsjá barna undir 18 ára aldri hjá 358 fjölskyldum. Hjá 401 fjölskyldu í sambúðarslitum þurfti að úrskurða um forsjá. Alls þurfti að úrskurða um forsjá 1.172 barna úr skilnuðum og sambúðarslitum árið 2008, að því er fram kemur í tilkynningu Hagstofu Íslands.

„Frá árinu 2002 hefur verið algengast að foreldrar fari sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað en það varð fyrst mögulegt árið 1992. Fram að því var algengast að móðir færi ein með forsjá. Árið 2008 var forsjá barna úr skilnuðum þannig að 497 börn njóta sameiginlegrar forsjár foreldra sinna, móðir ein með forsjá 105 barna og faðir fer einn með forsjá einungis 6 barna. Árið 2008 nær sameiginleg forsjá foreldra þannig til fjögurra af hverjum fimm börnum (81,1 %).

Sameiginleg forsjá hefur jafnan verið talsvert algengari eftir sambúðarslit en lögskilnaði. Strax árið 1997 varð það algengast að foreldrar færu saman með forsjá barna sinna. Árið 2008 er engin undantekning en þá völdu foreldrar sameiginlega forsjá í 90,5% tilvika. Móðir fer ein með forsjá með 47 börnum, eða í 8,4% tilvika. Faðir fer einn með forsjá með 6 börnum (1,1%),“ segir Hagstofan enn fremur.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX