
Mikil ásókn hefur verið í fjármálanámskeið Íslandsbanka, en um 500 manns hafa skráð sig á námskeiðin. Vegna fjölda áskoranna hafa Íslandsbanki og Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík ákveðið að bjóða upp á viðbótarnámskeið og til stendur að bjóða upp á svipuð námskið á landsbyggðinni á næstu mánuðum.
Í tilkynningu Íslandsbanka segir:
„Undanfarið hefur Íslandsbanki í samstarfi við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík boðið fjármálanámskeið fyrir almenning. Námskeiðin hafa mælst mjög vel fyrir og viðtökurnar verið framar vonum og var uppselt á námskeiðin á mjög skömmum tíma en alls hafa um 500 manns skráð sig á námskeiðin.
Vegna fjölda áskoranna hafa Íslandsbanki og Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík ákveðið að bjóða uppá viðbótarnámskeið.
Til stendur að bjóða upp á svipuð námskeið á landsbyggðinni á næstu mánuðum.
Markmið námskeiðanna er að veita ráðleggingar um flest sem snýr að fjármálum fjölskyldunnar. Þátttakendur eru fræddir um sparnað, lán, efnahagsreikning heimilisins, heimilisbókhald, fjárfestingar, lífeyrissparnað og margt fleira. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Þór Clausen, M.Sc. í fjármálum, ásamt ráðgjöfum frá Íslandsbanka.
Námskeiðin fara fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, og eru öllum opin. Hvert námskeið stendur í 3 klst. og þátttökukostnaður er 1.000 kr. eða 1.000 punktar í Vildarklúbbi Íslandsbanka.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.