
Frumvarp til laga um rannsókn samgönguslysa er nú til umsagnar. Felur það í sér sameiningu núverandi rannsóknarnefnda sjóslysa, flugslysa og umferðarslysa í eina og er markmiðið að efla og bæta slysarannsóknir. Umsagnarfrestur er til 1. apríl næstkomandi, að því er fram kemur í tilkynningu samgönguráðuneytisins.
Þar segir:
„Ný og sameinuð rannsóknarnefnd er í frumvarpinu nefnd Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Markmið frumvarpsins er að efla og bæta slysarannsóknir á Íslandi með það að leiðarljósi að auka öryggi í samgöngum. Með sameiningu rannsóknarnefndanna í eina er að leitast við að ná fram hagræðingu og efla um leið rannsókn samgönguslysa og styrkja starfsmenn annars mjög fámennra nefnda í einstökum slysaflokkum svo þeir hafi stuðning og styrk hver af öðrum við stærri rannsóknir.
Þá er ráðgert að fela nefndinni einnig aukin verkefni er lúta að skráningu og greiningu samgönguslysa og samgönguatvika og að annast gerð sérstakrar áætlunar um aðstoð til þolenda samgönguslysa og aðstandenda þeirra sem farast í samgönguslysum, í samvinnu við hagsmunaaðila og aðrar opinberar stofnanir. Í II. kafla eru ráðgerðir tveir möguleikar við uppbyggingu nefndarinnar sem sérstaklega er óskað umsagnar um.
Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi:
Í I. kafla er að finna almenn ákvæði um gildissvið og markmið. Gildissviðið er rannsókn samgönguslysa og samgönguatvika er heyra undir hina nýju sameinuðu rannsóknarnefnd sem lagt er til að sett verði á laggirnar með þessu frumvarpi. Nýmæli er ákvæði um orðskýringar sem settar eru fram til hægðarauka og skýringa. Markmið rannsókna er óbreytt frá gildandi lögum um nefndirnar. Fáein nýmæli eru í ákvæði um lögsögu er varða rannsókn sjóslysa.
Í II. kafla er fjallað um Rannsóknarnefnd samgönguslysa og rannsóknarstjóra, þar á meðal skipulag, hæfi, ábyrgð og umsýslu. Nefndin lýtur stjórn formanns sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Formaður ber ábyrgð á og stjórnar daglegum rekstri stofnunar, þar á meðal fjárreiðum hennar, og gætir þess að reksturinn sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Ráðgerðir eru tveir möguleikar við uppbyggingu nefndarinnar. Annars vegar að nefndin verði skipuð fimm mönnum, þar af einum formanni auk fjögurra varamanna og hinsvegar að nefndin verði skipuð fimm mönnum, þar af einum formanni auk faghóps tólf sérfræðinga sem væri nefndinni til aðstoðar við rannsókn. Rannsóknir samgönguslysa eru í höndum Rannsóknarnefndar samgönguslysa sem annast rannsókn á einstökum slysaflokkum. Rannsóknarstjórar stýra rannsóknarverkefnum í umboði og á ábyrgð nefndarinnar. Þrír nefndarmenn skulu taka þátt í rannsókn hvers máls auk viðkomandi rannsóknarstjóra hverju sinni. Rannsóknarnefndin skal starfa sjálfstætt og óháð stjórnvöldum.
Í III. kafla frumvarpsins er kveðið á um málsmeðferð o.fl. Ýmis nýmæli eru í kaflanum sem rekja má til þjóðréttarlegra skuldbindinga sem innleiddar eru. Meðal slíkra nýmæla eru ákvæði er lúta að tilkynningum til erlendra stjórnvalda í kjölfar slyss, ákvæði um þátttöku erlendra ríkja í rannsókn máls, ákvæði um varðveislu rannsóknargagna, ákvæði um tilkynningu til yfirvalda, komi upp grunur um að beitt hafi verið ólögmætum aðgerðum gegn öryggi samgangna og ákvæði um öflun ferðrita úr erlendu loftfari sem lendir hér á landi.
Í IV. kafla frumvarpsins er að finna sameiginleg ákvæði um skýrslugerð rannsóknarnefndarinnar, bæði áfangaskýrslur og lokaskýrslur rannsóknar auk ákvæðis um gerð ársskýrslu nefndarinnar.
Í V. kafla frumvarpsins er fjallað um heimildir til endurupptöku máls og sérstakar rannsóknir. Þá er nýmæli ákvæði er fjallar um heimild ráðherra til að fela rannsóknarnefndinni að annast skráningu samgönguslysa og alvarlegra samgönguatvika.
VI. kafli frumvarpsins er nýmæli og kveður á um áætlun um aðstoð við þolendur og aðstandendur þeirra sem farast í samgönguslysum. Í frumvarpinu er ráðgert að Rannsóknarnefnd samgönguslysa verði falið að annast gerð slíkrar áætlunar í samstarfi við þá fjölmörgu hagsmunaaðila og opinberar stofnanir sem koma þurfa að slíkri áætlun.
VII. kafli frumvarpsins kveður á um heimild ráðherra til setningar reglugerðar til frekari útfærslu laganna auk gildistökuákvæðis.
Þeir sem koma vilja á framfæri ábendingum og umsögnum um frumvarpið eru beðnir að gera það í síðasta lagi 1. apríl og senda á netfangið postur@sam.stjr.is.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.