
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur undirritað friðlýsingu Vatnshornsskógar í Skorradal sem friðlands í samræmi við þingsályktun um náttúruverndaráætlun. Friðlýsingin var unnin í samvinnu við Skorradalshrepp og Skógrækt ríkisins, að því er fram kemur í tilkynningu umhverfisráðuneytisins. Þar segir enn fremur:
Markmið friðlýsingarinnar er að vernda náttúrulegan, lítt snortinn og hávaxinn birkiskóg með gróskumiklum botngróðri og erfðafjölbreytileika birkisins á svæðinu.
Á svæðinu er líffræðileg fjölbreytni mikil og þar vaxa sjaldgæfar tegundir, m.a. eini fundarstaður fléttutegundarinnar flókakræðu. Með friðlýsingu skógarins á að tryggja að líffræðilegri fjölbreytni vistgerða og vistkerfa svæðisins verði viðhaldið. Í því ljósi á að vernda tegundir dýra, plantna og annarra lífvera ásamt erfðaauðlindum sem tegundirnar búa yfir og búsvæði þeirra. Ennfremur er það markmið friðlýsingarinnar að treysta rannsókna-, útivistar- og fræðslugildi svæðisins.
Í friðlandinu verður óheimilt að spilla náttúrulegu gróðurfari, trufla dýralíf og hrófla við jarðmyndunum og öðrum náttúruminjum. Samkvæmt friðlýsingunni skal Vatnshornsskógur vaxa villtur og verður ekki hirtur eins og um nytjaskóg væri að ræða. Þó er heimilt að grisja skóginn í þágu náttúruverndar og útivistar, svo sem vegna stígagerðar.
Með friðlýsingunni á að vernda náttúrulegt gróðurfar og skapa skilyrði til náttúrulegrar endurnýjunar birkis á svæðinu. Plöntun annarra trjátegunda en staðarafbrigðis birkis er óheimil og ekki verða ræktaðar framandi plöntutegundir í friðlandinu.
Skógrækt ríkisins hefur umsjón með svæðinu, en Umhverfisstofnun hefur eftirlit með framkvæmd friðlýsingarinnar. Umhverfisstofnun og Skógrækt ríkisins gera sérstakan samning um umsjón og rekstur friðlandsins, segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.