
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lést í morgun á heimili sínu í Garðabæ á 82 aldursári. Steingrímur var forsætisráðherra á árunum 1983 til 1987 og síðan aftur frá 1988 til 1991. Hann gegndi einnig öðrum ráðherraembættum og var seðlabankastjóri frá 1994 til 1998, að því er mbl.is greinir frá.
Þar segir enn fremur:
„Steingrímur fæddist í Reykjavík 22. júní 1928, sonur Hermanns Jónassonar, alþingismanns og ráðherra og eiginkonu hans, Vigdísar Oddnýjar Steingrímsdóttur.
Steingrímur lauk stúdentsprófi frá MR 1948 og prófi í rafmarksverkfræði frá tækniháskólanum í Chicago árið 1951. Þá lauk hann M.Sc.-próf frá California Institute of Technology í Pasadena árið 1952.
Eftir nám starfaði Steingrímur sem verkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1952—1953 og hjá Áburðarverksmiðjunni 1953—1954. Hann starfaði einnig sem verkfræðingur við Southern California Edison Company í Los Angeles 1955—1956. Hann var framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins 1957—1978.
Steingrímur var kjörinn á Alþingi 1971 fyrir Framsóknarflokkinn og sat þar til ársins 1994, fyrst fyrir Vestfjarðakjördæmi en frá 1987 fyrir Reykjaneskjördæmi. Hann var dóms- og kirkjumála- og landbúnaðarráðherra frá 1978 til 1979 og sjávarútvegs- og samgönguráðherra frá 1980 til 1983 þegar hann var skipaður forsætisráðherra. Hann tók árið 1987 við embætti utanríkisráðherra en var árið eftir forsætisráðherra á ný til 1991.
Steingrímur var formaður Framsóknarflokksins á árunum 1979 til 1994 og gegndi að auki fjölda trúnaðarstarfa og embætta.
Steingrímur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sara Jane Donovan og þau eignuðust þrjú börn: Jón Bryan, Ellen Herdísi og S. Neil. Síðari kona Steingríms var Guðlaug Edda Guðmundsdóttir. Þau eignuðust þrjú börn: Hermann Ölvir, Hlíf og Guðmund.
Fáir komist nær því að teljast allra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu flokksins að Steingríms verði sárt saknað.
„Hann naut mikillar hylli sem stjórnmálamaður ekki aðeins hjá Framsóknarmönnum heldur stórum hluta þjóðarinnar. Fáir stjórnmálamenn hafa komist nær því að teljast allra,“ segir Sigmundur Davíð.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.