amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:22
 
Frétt birtist 31. janúar 2010 klukkan 19:08

Forsætis­ráðherra sendi bronsliði Íslands hamingjuóskir

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði fór fyrir íslenska bronsliðinu.

Íslendingar unnu til bronsverðlauna á EM í handknattleik í dag er þeir lögðu Pólverja með þriggja marka mun. Í tilefni þess sendi forsætisráðherra hinu sigursæla liði hamingjuóskir. Þetta er annað stórmótið í röð sem íslenska liðið vinnur til verðlauna en það náði silfurverðlaunum á ólympíuleikunum í Peking árið 2008.

Liðið sigraði Pólverja 29-26 en staðan var 18-10 fyrir Íslendinga.

Hamingjuóskir forsætisráðherra fara hér á eftir:

„Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi íslenska landsliðinu í handbolta eftirfarandi heillaóskaskeyti í dag:

“Til íslenska landsliðsins í handbolta, aðstoðarfólks þess og Handknattleikssambands Íslands

Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar óska ég ykkur til hamingju með verðskulduð bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta. Ég veit ég mæli fyrir hönd þjóðarinnar þegar ég þakka ykkur innilega fyrir frábæra skemmtun og

drengilega baráttu. Árangur ykkar er kærkomin upplyfting á erfiðum tímum í sögu þjóðarinnar.

Ég sagði á fundi Sóknaráætlunar 20/20 fyrir tíu dögum að við ættum sem þjóð að taka íslenska landsliðið í handbolta til fyrirmyndar. Í ljósi árangursins á mótinu er ástæða til þess að ítreka þá áskorun og sýna þakklæti okkar í verki með því að styðja landsliðið sérstaklega til þátttöku á Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð á næsta ári. Ríkisstjórnin leggur fram 10 milljónir króna í því skyni. Áfram Ísland!

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.„

Frakkar unnu Króata í úrslitaleik og hirtu þar enn eitt gullið, eru ríkjandi heimsmeistarar, ólympíumeistarar og Evrópumeistarar. Það hefur engu karlalandsliði tekist áður.

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX