amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:21
 
Frétt birtist 29. janúar 2010 klukkan 12:07

Nauthólsvegur frá Hringbraut opnaður eftir viku

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Framkvæmdir við Nauthólsveg frá Hringbraut að Flugvallarvegi eru á lokastigi og er ráðgert að opna hann fyrir almennri umferð eftir viku, föstudaginn 5. febrúar. Mikill kraftur er í vinnu við fjölmarga verkþætti nú á lokasprettinum, en meðal annars unnið að tengingum umferðarljósa, yfirborðmerkingu gatna, hellulögn, landmótun vegfláa, uppsetningu umferðarskilta og gerð gönguleiða, að því er fram kemur í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Þar segir enn fremur:

Forsteypt undirgöng

„Meðal nýjunga við framkvæmdina var að undirgöng voru forsteypt í einingum og flutt á staðinn. Með því sparaðist bæði tími og fé. Undirgöngin eru hluti af stígakerfinu, en göngu- og hjólastígur er meðfram Nauthólsvegi. Er það hluti af grænum skefum í Reykjavík. Yfirborð stígsins er ekki frágengið og mun verktaki ljúka frágangi þegar veður leyfir.

Umferðarljósin á gatnamótum Nauthólsvegar og Flugvallarvegar eru hluti af miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík.

Segja má að veðrið leggi framkvæmdunum lið, en þó verkinu miði vel þá er ljóst að ekki verður öllum verkþáttum lokið þegar opnað verður fyrir umferð. Endanlegum frágangi á yfirborði svo sem þökulagningu, sáningu og hellulögnum á að vera lokið í júní.

Flugvallarvegur verður í framhaldinu tengdur við nýju gatnamótin

Í framhaldi af opnun Nauthólsvegar verður hafist handa við að tengja Flugvallarveg við Nauthólsveg um ný gatnamót. Ráðgert er að hefja þá vinnu mánudaginn 8. febrúar. Umfangsmikil lagnavinna er samfara breytingu á lagningu vegarins og verður af þeim sökum að loka Flugvallarvegi tímabundið í eina til tvær vikur á stuttum kafla við bílaleiguna Herz. Á þeim tíma verður aðkoma að Háskólanum í Reykjavík, Hótel Loftleiðir og að félagssvæði Vals eingöngu um hinn nýja Nauthólsveg frá Hringbraut.

Umsjón með verklegum framkvæmdum hefur mannvirkjastofa Framkvæmda- og eignasviðs og leiðir Ólafur Ólafsson, deildarsstjóri gatnaframkvæmda þá vinnu. Verktaki er Magni ehf., verkeftirlit er í höndum VSÓ Ráðgjafar og Almenna verkfræðistofan sá um hannaði mannvirkið. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 480 milljónir króna.“

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX