amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 17:22
 
Frétt birtist 28. janúar 2010 klukkan 17:27

Stuðlað að auknu öryggi í hverfum Reykjavíkur

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Giulia Sala
Séð yfir miðborg Reykjavíkur.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, undirrituðu í dag tveggja ára samstarfssamning milli Reykjavíkurborgar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH) á sviði öryggis- og forvarnarmála. Markmið samningsins er að stuðla að auknu öryggi almennings í borginni með markvissu samstarfi LRH og Reykjavíkurborgar, að því er fram kemur í tilkynningu borgarinnar.

Þar segir enn fremur:

„Með samningnum er stefnt að fækkun innbrota, eignaspjalla og umferðarslysa í borginni um 5- 10% milli ára með reglulegum mælingum, viðeigandi viðbrögðum, eftirfylgni og eftirliti. Fulltrúar beggja aðila munu í framhaldi af því greina upplýsingarnar í því augnamiði að efna til viðeigandi aðgerða til að auka öryggi, fækka slysum, skipuleggja forvarnir og grípa til annarra nauðsynlegra ráðstafana.

Lögreglan verður með aðsetur í þjónustumiðstöðvum borgarinnar og mun í samstarfi við starfsmenn miðstöðvanna vinna að forvörnum og fjölskylduþjónustu auk umferðarfræðslu. LRH sendir borgaryfirvöldum upplýsingar um þróun afbrota og umferðarslysa á ársfjórðungs fresti samkvæmt samningnum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðsins, skrifuðu undir samstarfssamninginn í Ráðhúsinu fyrr í dag. Hanna Birna segir samninginn fela í sér ótvíræðan ávinning fyrir borgarbúa. „Með samningnum er stuðlað að sérþekkingu lögreglunnar á aðstæðum og þjónustu innan einstakra hverfa. Sú þekking að viðbættri öflugri samvinnu við starfsmenn þjónustumiðstöðvanna á án efa eftir að skila sér í árangursríkara forvarnarstarfi og auknu öryggi í hverfum borgarinnar.“

Starfsmenn þjónustumiðstöðvanna og lögreglan munu veita íbúum aðstoð við að koma upp nágrannavörslu, skipuleggja athvarfsvaktir og fræðslufundi um forvarnir í hverfum borgarinnar. Þá munu þessir aðilar ásamt ÍTR og foreldrum eiga með sér samráð um foreldrarölt.

Þjónustumiðstöðvar eru í sex hverfum Reykjavíkurborgar og sinna þær þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX