

Vinnuhópur sem Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, setti á fót í desember sl. til að kanna möguleika innan gildandi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að nýttar séu þær heimildir sem til staðar eru til þess að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi, hefur nú skilað ráðherra 16 tillögum til úrbóta. Ráðherra hefur í framhaldinu falið samráðsnefnd lögreglu og Útlendingastofnunar um útlendingamál að fylgja tillögum vinnuhópsins eftir, að því er fram kemur í tillögum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins.
Þar segir enn fremur:
„Vinnuhópinn skipuðu þau Sigríður Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem var jafnframt formaður, Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, Guðbrandur Guðbrandsson, lögreglufulltrúi hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra, Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins og Þorsteinn Gunnarsson, forstöðumaður hælissviðs Útlendingastofnunar.
Vinnuhópurinn leggur m.a. til að lögregla nýti betur þá kosti sem felast í Schengen-samstarfinu. Aðgangur að gagnabönkum, fagstofnunum og aðild að alþjóðegum samningum stuðli að sterkari stöðu lögreglu á Íslandi í baráttunni við skipulagða alþjóðlega brotastarfsemi. Hægt sé að gera mun betur til þess að vega upp ókosti Schengen samstarfsins og jafnframt að nýta betur þá kosti sem samstarfið býður upp á en gert er í dag. Vinnuhópurinn leggur ekki til breytingar á framkvæmd landamæraeftirlits en leggur hins vegar til að tekið verið upp nánara samstarf lögreglu og tollgæslu við svæðisbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem byggt verður á grundvelli áhættugreiningarlíkans. (sjá tillögu 3 í skýrslunni)
Aðrar helstu tillögur vinnuhópsins eru þessar:
1. Komið verði á fót svokölluðum INDICIA upplýsingagrunni hérlendis, til nota fyrir lögreglu og tollgæslu. Aukin áhersla verði lögð á greiningar og vinnslu tölfræðiupplýsinga um afbrot útlendinga. (Tillaga 6).
2. Frumkvæði að beitingu brottvísana verði fært til lögreglu sem undirbúi mál til ákvarðanatöku hjá Útlendingastofnun. (Tillaga 8).
3. Aukinn málshraði. Sett verði á flýtimeðferð hjá Útlendingastofnun, sem miði að því að ákvörðun um frávísun verði tekin í fullbúnu máli að gættum fresti til andmæla innan 24 klukkustunda og í málum vegna brottvísunar innan 48 klukkustunda eftir að mál berst fullbúið frá lögreglu. (Tillaga 10).“
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.