amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. september 2010 - 08:33
 
Frétt birtist 27. janúar 2010 klukkan 15:45

Fella á ísbjörninn í Þistilfirði - ísbjarnarbúrið ekki nýtt

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Búrið sem nota átti við síðustu björgunartilraun þegar ísbjörn gekk á land nærri Skagafirði er enn á landinu samkvæmt Umhverfisstofnun. Þá náðist ekki að fanga björninn lifandi. Búrið hefur því ekki verið notað. Ákveðið hefur verið að fella björninn þar sem ekki séu uppi ákjósanlegar aðstæður til þess að bjarga honum, að því er Vísir greinir frá en eins og fram hefur komið á AMX leita menn nú ísbjörns sem sást til í Þistilfirði fyrr í dag. Í fréttinni segir enn fremur:

„Umhverfisstofnun fylgir viðbragðsáætlun vegna landgöngunnar og er í sambandi við yfirvöld í Þórshöfn. Tvær skyttur og lögregluþjónn fylgja ísbirninum eftir.

Samkvæmt tilkynningu frá Umhverfisstofnun þá barst tilkynning um að hvítabjörn hafi gengið á land í Þistilfirði í dag. Umhverfisstofnun vinnur nú að viðbrögðum í samráði við lögreglu og önnur yfirvöld. Mat lögreglu á aðstæðum eru að nauðsynlegt sé að fella björninn við fyrsta tækifæri og tekur Umhverfisstofnun undir það.

Niðurstaða starfshóps um viðbrögð við landgöngu hvítabjarna sem skipuð var í kjölfar landgöngu tveggja hvítabjarna árið 2008 var fella beri hvítabirni sem ganga á land. Samkvæmt Umhverfisstofnun eru fyrir því þrenn meginrök, í fyrsta lagi öryggissjónarmið, í öðru lagi stofnstærðarrök og í þriðja lagi kostnaður við björgunaraðgerðir.

Til þess að reyna björgun þurfa að vera ákjósanlegar aðstæður, s.s. að fólki standi ekki hætta af, skyggni sé gott og tryggt sé að dýrið sleppi ekki út í vatn eða sjó. Aðstæður í Þistilfirði eru ekki ákjósanlegar til þess að reyna björgun.

Eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Sif, tekur þátt í leitinni en vélin var við hefðbundið eftir á miðunum undan Norðausturlandi. Hún nálgast nú svæðið þar sem talið er að ísbjörninn haldi sig. Flugvélin er búin afar góðum eftirlitsbúnaði.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX